2012-11-07 14:27:10 CET

2012-11-07 14:28:11 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Fljótsdalshérað - Fyrirtækjafréttir

Fjárhagsáætlun 2013 – 2016


Fjárhagsáætlun fyrir árið 2013 verður lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn
Fljótsdalshéraðs miðvikudaginn 7. nóv.. 2012 og henni vísað til seinni umræðu
sem verður þann 21. nóv. n.k..  Jafnframt er  lögð fram 3ja ára áætlun fyrir
árin 2014 - 2016. 



Helstu viðmið fjárhagsáætlunar Fljótsdalshéraðs eru:



  -- Jafnvægi
 skal vera á milli samanlagðra rekstartekna og gjalda A- og B-hluta á
     hverju þriggja ára tímabili.
     -- Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2013 verður afgangur
        af rekstri bæði A- og B- hluta á árinu.



  -- Framlegð rekstrar
 (niðurstaða fyrir afskriftir og fjármagnsliði) skal vera á bilinu 15 -
     20%.
     -- Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2013 verður
        framlegðarhlutfall A-hluta 19% og í samstæðu A og B hluta 24%.



  -- Veltufé frá rekstri
 A- og B-hluta nemi ekki lægri fjárhæð en sem nemur afborgunum og vöxtum af
     langtímalánum.
     -- Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2013 mun veltufé frá
        rekstri nema 505 millj. kr. en afborganir af skuldbindingum verða um 422
        millj. kr. í samstæðu A og B hluta.  Í A hluta nemur veltufé frá rekstri
        um 360 millj. kr. en greiðslur vegna skuldbindinga nema um 334 millj.
        kr.

  -- Skuldir og skuldbindingar
 samstæðu (A- og B-hluta) fari ekki yfir 250% af skilgreindum tekjum.
     -- Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2013 verður
        skuldahlutfall A-hluta  191% og samstæðu A og B hluta um 250%.
     -- Árið 2016 verður skuldahlutfall A hluta um 155% og í samstæðu A og B
        hluta er áætlað að skuldahlutfallið nemi um 213%.



Mikilvægt er að framagreind viðmið verði tekin alvarlega og var því lögð
áhersla á það við vinnu fjárhagsáætlunar 2013 að hún yrði löguð að þeim. Slík
aðlögun er liður í því að laga rekstur sveitarfélagsins að breyttum aðstæðum,
treysta fjárhag þess og gera það betur í stakk búið til að mæta þörfum íbúanna
í framtíðinni. 



Inni í skuldbindingum sveitarfélagsins að farið verði af stað með byggingu á
hjúkrunarheimili og verði á árunum 2013 og 2014 varið 1.100 millj. kr. til þess
verkefnis.  Á móti koma framlög  frá ríkisvaldinu á næstu 40 árum í formi
leigugreiðslna til að mæta stofnkostnaði. 



Bygging hjúkrunarheimilisins er löngu orðin tímabær og búa öldruðum þar með þá
umgjörð sem þeim ber og efla í leiðinni atvinnustigið á svæðinu og rekstur HSA. 



Nánari upplýsingar veitir Björn Ingimarsson, bæjarstjóri