2013-09-23 14:01:37 CEST

2013-09-23 14:02:38 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Reitir II ehf. - Fyrirtækjafréttir

Tímabundin undanþága frá ákvæðum í lánasamningum Reita II


Með vísan til skýringar 7 í árshlutareikningi Reita II tilkynnist það hér með
að lánveitendur Reita II hafa veitt félaginu tímabundna undanþágu frá ákvæðum í
lánasamningunum og munu þeir hvorki krefjast gjaldfellingar né annarra
vanefndarúrræða vegna brota á þeim ákvæðum. 

Félagið hefur undanfarið unnið að endurfjármögnun á stærstum hluta skulda
félagsins í tengslum við fyrirhugaða skráningu samstæðunnar í kauphöll og
framangreind brot á ákvæðum hafa ekki áhrif á þær viðræður. Vísað er í
tilkynningu félagsins frá 26. júní s.l. þar sem greint er frá stöðu þeirra
mála. 

Nánari upplýsingar veitir:

Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri

Sími: 575 9000

einar@reitir.is