|
|||
2008-10-14 11:54:59 CEST 2008-10-14 11:55:22 CEST REGULATED INFORMATION Landsbanki Íslands hf. - FyrirtækjafréttirLandsbanki Íslands hf. óskar eftir því að hlutabréf bankans verði tekin úr viðskiptumStjórn Landsbanka Íslands hf. (skilanefnd) hefur með bréfi dags. 13. október 2008 farið þess á leit við Kauphöll Íslands hf. að skráð hlutabréf í Landsbanka Íslands hf. verði tekin úr viðskiptum á Nasdaq OMX á Íslandi, sbr. 2. mgr. 24. gr. laga nr. 110/2007 um Kauphallir. Til grundvallar beiðninni er vísað til inngrips íslenska Fjármálaeftirlitsins í rekstur bankans samkvæmt lögum nr. 125/2008 um sérstakar aðstæður á fjármálamarkaði, sbr. tilkynningu Fjármálaeftirlitsins dags. 7. október sl. |
|||
|