2011-02-08 13:23:04 CET

2011-02-08 13:24:04 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Nýherji hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Friðrik Þór Snorrason lætur af starfi framkvæmdastjóra Skyggnis ehf.



Friðrik Þór Snorrason framkvæmdastjóri Skyggnis, sem er rekstrar- og
hýsingarþjónustufyrirtæki Nýherjasamstæðunnar, hefur tekið að sér starf
forstjóra Reiknistofu bankanna (RB). Friðrik hefur störf hjá RB þann 25.
febrúar næstkomandi. 

Friðrik hefur starfað hjá Nýherjasamstæðunni frá því árið 2003, fyrst sem
markaðsstjóri, en tók svo við starfi framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar Nýherja
hf. Hann var ráðinn framkvæmdastjóri Skyggnis árið 2008.