2008-05-23 11:58:06 CEST

2008-05-23 11:59:06 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Tryggingamiðstöðin hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

- Garðar Þorsteinn Guðgeirsson ráðinn framkvæmdastjóri fjárfestinga og viðskiptaþróunar.


Garðar Þorsteinn Guðgeirsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjárfestinga og
viðskiptaþróunar hjá Tryggingamiðstöðinni. Garðar mun stýra uppbyggingu nýs     
sviðs fjárfestinga og viðskiptaþróunar hjá félaginu, auk þess sem hann mun stýra
stefnumótun dótturfélaga TM og samþáttun rekstrar þeirra við móðurfélagið.      

Garðar kemur til liðs við Tryggingamiðstöðina frá McKinsey&Company í            
Kaupmannahöfn, þar sem hann hefur gegnt stöðu ráðgjafa frá byrjun árs 2007.     
Garðar starfaði áður hjá Íslensku verkfræðistofunni, auk þess sem hann var einn 
stofnenda Baggalúts efh. Garðar útskrifaðist með BSc gráðu í Rafmagns- og       
tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1999, MSc gráðu í Hugbúnaðarverkfræði   
frá University of York árið 2001, og MBA gráðu frá IMD árið 2006.