2013-02-12 19:43:23 CET

2013-02-12 19:44:25 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Marel hf. - Hluthafafundir

Aðalfundur Marel hf. 2013


Aðalfundur Marel hf. verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins að Austurhrauni 9,
210 Garðabæ, miðvikudaginn 6. mars nk., kl. 16:00. 

Dagskrá:

  -- Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt grein 4.13 í samþykktum félagsins.
  -- Breyting á samþykktum félagsins með hliðsjón af 1. mgr. 63. gr. laga um
     hlutafélög nr. 2/1995 um kynjahlutföll stjórnarmanna.
  -- Tillaga um að heimila félaginu að kaupa eigin hlutabréf.
  -- Önnur mál, löglega borin fram.

Fundarstörf munu fara fram á ensku.

Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn
skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm
sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar. 

Til þess að tillögur frá hluthöfum sem leggja á fyrir á fundinum verði teknar
þar til umræðu verður að skila þeim til stjórnar félagsins eigi síðar en sjö
dögum fyrir fundinn. 

Frekari upplýsingar um tímafresti þá sem gilda í tengslum við rétt hluthafa til
að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar, leggja fram ályktunartillögur fyrir
fundinn, o.fl. er að finna á aðalfundarvef félagsins, www.marel.com/agm. Þar er
jafnframt að finna allar frekari upplýsingar í tengslum við aðalfundinn, þ.m.t.
ársskýrslu félagsins, drög að dagskrá fundarins, tillögur stjórnar félagsins,
ársreikning félagsins fyrir árið 2012, upplýsingar um heildarfjölda hluta og
atkvæðafjölda í félaginu m.v. 12. febrúar 2013, umboðsform auk upplýsinga um
skjöl sem lögð verða fyrir fundinn. 

Endanleg dagskrá fundarins og tillögur verða aðgengilegar hluthöfum sjö dögum
fyrir fundinn á framangreindum aðalfundarvef félagsins sem og á skrifstofu
félagsins að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ. 

Umboðsmenn hluthafa skulu framvísa skriflegum umboðum við inngang.
Atkvæðaseðlar og önnur gögn verða aðgengileg á fundarstað frá kl. 15.30. 



Stjórn Marel hf.