2012-03-20 11:43:51 CET

2012-03-20 11:44:54 CET


REGLERAD INFORMATION

Isländska
Garðabær - Ársreikningur

Ársreiknigur Garðabæjar fyrir árið 2011


Sterk fjárhagsstaða og góð afkoma

Niðurstaða ársreiknings Garðabæjar fyrir árið 2011 sýnir vel sterka
fjárhagsstöðu bæjarins. Rekstrarniðurstaða er jákvæð um 352 m.kr. en áætlun
gerði ráð fyrir rekstrarafgangi að fjárhæð  75 m.kr. Þessa góðu niðurstöðu má
fyrst og fremst rekja til hærri tekna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir, sem
eru m.a. til komnar vegna fjölgunar íbúa umfram spár.  Ársreikningurinn var
lagður fram í bæjarráði í dag. 

Rekstur Garðabæjar gengur vel eins og niðurstaða ársreiknings ber vott um.
Rekstrartekjur ársins námu 6.714 m.kr. og rekstrargjöld með fjármagnsliðum voru
6.362 m.kr. Niðurstaðan er því jákvæð sem nemur 352 m.kr.  Þrátt fyrir það eru
álögur á íbúa lágar í Garðabæ. Útsvar var á síðasta ári og er enn 13,66% sem er
með því lægsta sem gerist á landinu. 

Stærsti liðurinn í rekstri bæjarins er laun og launatengd gjöld sem námu 2.913
m.kr. Stærsti málaflokkurinn er fræðslu- og uppeldismál en til hans er varið
tæpum þremur milljörðum. Rúmar 718 milljónir fara til íþrótta- og æskulýðsmála
og 590 milljónir í félagsþjónustu. 

Framkvæmdir síðasta árs námu samtals 870 m.kr. en áætlun gerði ráð fyrir 928
m.kr. Stærstu framkvæmdir ársins voru bygging leikskólans Akra, sem var byggður
án lántöku og framkvæmdir við nýtt hjúkrunarheimili á Sjálandi.  Kostnaður við
leikskólann Akra nam 246 m.kr. á árinu og til  byggingar hjúkrunarheimilis á
Sjálandi var 255 m.kr. varið á árinu. Þá var 155 m.kr.  varið til kaupa á
húsnæði fyrir fatlað fólk og 56 m.kr. til ýmissa framkvæmda við skóla bæjarins. 

Allar kennitölur í rekstri staðfesta fjárhagslegan styrk Garðabæjar.
Veltifjárhlutfall er 1,44 og eiginfjárhlutfall 59%. Skuldahlutfall hefur
lækkað, er 96% en var 113% árið 2010. Langtímaskuldir við lánastofnanir og
leiguskuldir nema samtals 3.793 m.kr. samanborið við 4.216 m.kr. árið 2010. 
Eignir nema samtals 15.596 m.kr. árið 2011 og hafa hækkað um 562 m.kr. milli
ára. Veltufé frá rekstri er 1.181 m.kr. en var 1.009 m.kr. árið 2010. 

Garðabær tók við rekstri á málefnum fatlaðs fólks í ársbyrjun 2011 af ríkinu og
sér einnig um málaflokkinn fyrir Sveitarfélagið Álftanes skv. samningi þar um. 
Vel hefur tekist til með rekstur málaflokksins. Á þessu fyrsta ári var þess
gætt sérstaklega að fylgjast gaumgæfilega með honum og var hann samkvæmt
áætlun. 

Íbúar Garðabæjar voru 11.270 1. desember 2011 samanborið við 10.895 árið áður
sem gerir íbúafjölgun um 3,4%. 



Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri,
sími: 820 8541,
netfang: gunnar@gardabaer.is.