|
|||
2024-04-18 14:09:23 CEST 2024-04-18 14:09:25 CEST REGULATED INFORMATION Kópavogsbær - ÁrsreikningurRekstur Kópavogsbæjar styrkist verulega milli ára18.4.2024 Ársreikningur Kópavogsbæjar fyrir árið 2023 endurspeglar traustan rekstur sveitarfélagsins og hefur hann styrkst verulega frá fyrra ári. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði er 2,7 milljarðar en var 1,3 milljarður í fyrra. Þá lækkar skuldaviðmið í 91% úr 95% og er langt undir lögbundnu hámarki sem er 150% samkvæmt sveitarstjórnarlögum. Nær engar lóðaúthlutanir voru á árinu með tilheyrandi tekjum. Í ár verður hins vegar úthlutað lóðum í Vatnsendahvarfi og fyrsta úthlutun lóða á næstunni. Stefnt er á að úthluta öllum lóðum í Vatnsendahvarfi á árinu sem mun skila sér inn í niðurstöðu ársreiknings 2024. „Rekstur Kópavogsbæjar styrkist umtalsvert milli ára sem endurspeglar ríka áherslu okkar á traustan rekstur. Þannig er afgangur af rekstri bæjarins fyrir fjármagnsliði 1,4 milljörðum hærri en í fyrra þrátt fyrir að lífeyrisskuldbinding hækki um 1,3 milljarð milli ára. Þá er verulegt styrkleikamerki að veltufé frá rekstri eru fimm milljarðar króna og eykst um tæpa tvo milljarða milli ára. Veltufé frá rekstri er algjör lykiltala í ársreikningi og er það svigrúm sem reksturinn gefur til að standa undir framkvæmdum og afborgunum lána. Ársreikningurinn var lagður fram í bæjarráði Kópavogs fimmtudaginn 18.apríl og vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn Kópavogs þann 23.apríl næstkomandi. Umfangsmiklar fjárfestingar Skuldaviðmið lækkar áfram Skuldaviðmið A- og B-hluta lækkar frá fyrra ári og er 91%, var 95% í árslok 2022. Skuldaviðmið A-hluta er 82%. Verðbólga var töluvert hærri en gert hafði verið ráð fyrir og eru verðbætur og lífeyrisskuldbindingar meginskýring á því að rekstrarniðurstaða samstæðunnar, A- og B-hluta var neikvæð um tæpar 800 milljónir, eða sem nemur 1,5% af tekjum. Veltufé frá rekstri samstæðunnar, A- og B-hluta, hækkar í tæpa fimm milljarða úr rúmlega þremur milljörðum króna frá fyrra ári. Eigið fé samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi A- og B-hluta í árslok 2023 nam 38,3 milljörðum króna en eigið fé A hluta nam 18,4 milljörðum króna. Laun og launatengd gjöld ríflega helmingur af tekjum Laun og launatengd gjöld A-og B-hluta á árinu námu alls 25,8 milljörðum króna sem er 8,8% hækkun frá fyrra ári en allir kjarasamningar voru lausir hjá Kópavogsbæ á árinu. Launakostnaður vegur í dag um helming af rekstrartekjum. Fjöldi á launaskrá í árslok var 3.090 en meðal stöðugildi á árinu voru 1.988. Íbúar Kópavogsbæjar þann 1. desember 2023 voru 40.570 samkvæmt Þjóðskrá Íslands og fjölgaði þeim um 777 frá fyrra ári eða um 1,95%. Viðhengi |
|||
|