2016-07-07 18:04:27 CEST

2016-07-07 18:04:27 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjanesbær - Fyrirtækjafréttir

Fjármál Reykjanesbæjar


Vísað er til tilkynninga Reykjanesbæjar og Reykjaneshafnar um viðræður við
kröfuhafa um endurskipulagningu fjárhags Reykjanesbæjar og stofnana hans. 

Á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar sem haldinn var þann 7. júní sl. samþykkti
meirihluti bæjarstjórnar að óska eftir lengri fresti frá Eftirlitsnefnd með
fjármálum sveitarfélaga (hér eftir „eftirlitsnefnd“) til þess að reyna til
þrautar að ná samkomulagi við þá kröfuhafa sem samþykktu ekki tillögu um
fjárhagslega endurskipulagningu. 

Reykjanesbær fékk þann 10. júní sl. framlengdan frest af hálfu eftirlitsnefndar
10. júlí nk. til að kanna nýjan grundvöll að samkomulagi. 

Fulltrúar Reykjanesbæjar og Reykjaneshafnar hafa ásamt ráðgjöfum nýtt liðnar
vikur og fundað með þeim kröfuhöfum Reykjaneshafnar sem samþykktu ekki fyrri
tillögu um fjárhagslega endurskipulagningu. Í viðræðuferlinu hefur sjónum verið
einkum beint að möguleikum þess hvort grundvöllur væri fyrir samkomulagi um
heildstæða endurskipulagningu skulda Reykjanesbæjar og stofnana á öðrum
forsendum en þeim sem áður var hafnað af hluta kröfuhafa. 

Þar sem viðræðum hefur miðað áfram síðastliðnar vikur telur Reykjanesbær rétt
að viðræðum verði framhaldið í þeirri von að ná frjálsum samningum. Þar sem
tíma þarf til þess að útfæra frekar og ræða tillögur að
heildarendurskipulagningu Reykjanesbæjar og stofnana, sem og að kynna og ræða
slíkt hið sama við aðra kröfuhafa, verður óskað eftir við eftirlitsnefnd að
frestur sé veittur til 30. september nk. til þess að ljúka framangreindu
viðræðuferli. 



Nánari upplýsingar veitir Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri.