2016-07-08 09:28:04 CEST

2016-07-08 09:28:04 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Fyrirtækjafréttir

Reginn hf. og H&M undirrita leigusamninga


Reginn hf. og dótturfélag þess, Eignarhaldsfélagið Smáralind ehf., undirrituðu
í dag leigusamninga við  dótturfélag H&M Hennes & Mauritz AB (publ.) um húsnæði
undir tvær verslanir undir merkjum H&M.  Samningarnir ná til tveggja
staðsetninga. Annars vegar verslunar í  Smáralind og hins vegar í miðbæ
Reykjavíkur (Hafnartorgi). Verslanirnar munu opna á árunum 2017 og 2018. 

Það er mat Regins að tilkoma H&M í Smáralind muni hafa mikil og jákvæð áhrif á
verslunarmiðstöðina og verða mikilvægt skref í endurskipulagningu Smáralindar
m.a. með styrkingu leigutekna til framtíðar. Jafnframt er það mat Regins að
samningurinn um verslun H&M á Hafnartorgi verði stór liður í uppbyggingu
öflugrar verslana- og þjónustueiningar í miðbæ Reykjavíkur. 

Samhliða gerð framangreindra samninga er unnið að fjölmörgum nýjum
leigusamningum í Smáralind og Hafnartorgi. Nýir samningar verða kynntir þegar
þeir hafa verið fastsettir. 

Frekari kynning á verkefnum munu fara fram á komandi mánuðum.

Reginn hefur áður kynnt fyrirhugaðar fjárfestingar í tengslum við
endurskipulagningu Smáralindar og uppbyggingu Hafnartorgs. Þá er vísað til
fréttatilkynningar dags. 28. ágúst 2014 og kynningar dags. 29. maí 2015.
Arðsemi nýfjárfestinga í tengslum við ofangreind verkefni er í samræmi við
fjárfestingastefnu félagsins. 

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262