2016-08-08 21:43:31 CEST

2016-08-08 21:43:31 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Vátryggingafélag Íslands hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup VÍS á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun. Kaupum skv. endurkaupaáætlun lokið



Í 32. viku 2016 keypti Vátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) 2.272.043 eigin hluti 
 fyrir kr. 16.994.441 eins og hér segir:                                        
                                                                                
Dagsetnin   Tími    Keyptir    Viðskiptave   Kaupverð   Eigin hlutir VÍS eftir  
    g                hlutir         rð                         viðskipti        
--------------------------------------------------------------------------------
 8.8.2016  14:41   1.500.000      7,49      11.235.00         69.227.957        
                                                0                               
 8.8.2016  14:41    772.043       7,46      5.759.441         70.000.000        
 Samtals           2.272.043                16.994.44                           
                                                1                               
--------------------------------------------------------------------------------
                                                                                
                                                                                
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun  
 félagsins sem var hrint í framkvæmd 25. apríl 2016, sbr. og tilkynningu til    
 Kauphallar dags. 24. apríl 2016.Endurkaupum lokið                              
Vísað er til tilkynningar Vátryggingafélags Íslands hf. til Aðalmarkaðar um     
 framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka   
 útgefið hlutafé þess, dags. 24. apríl 2016. Eins og greint var frá í þeirri    
 tilkynningu er sú endurkaupaáætlun sem lauk í dag fjórða endurkaupaáætlun      
 félagsins frá því aðalfundur 2014 veitti slíka heimild. Aðalfundur 12. mars    
 2015 veitti stjórn heimild til að framkvæma endurkaupaáætlun þess efnis að     
 kaupa allt að 10% af hlutum félagsins á 18 mánuðum.                            
Þann 30. apríl 2015 ákvað stjórn VÍS að kaupa mætti eigin hluti fyrir allt að   
 1.000.000.000 kr. að markaðsvirði. Því var lokið sjö mánuðum síðar. Þá höfðu   
 4,88% af útgefnu hlutafé félagsins verið keypt eða tæplega helmingur þess sem  
 aðalfundur hafði heimilað.                                                     
Þann 24. apríl 2016 ákvað stjórn VÍS að halda endurkaupum áfram. Samkvæmt þeirri
 endurkaupaáætlun var áætlað að kaupa að hámarki hluti að nafnverði kr.         
 70.000.000 eða sem samsvarar 3,05% af útgefnu hlutafé félagsins. Fjárhæð       
 endurkaupanna skyldi þó ekki verða hærri en kr. 600.000.000 og gilti heimildin 
 til 12. september 2016. Reglubundnar tilkynningar til markaðarins um kaup VÍS á
 eigin bréfum hafa upplýst um framgang kaupanna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar   
 þessarar er nú lokið. Samtals hafa verið keyptir 70.000.000 hlutir í félaginu  
 sem samsvarar 3,05 % af útgefnu hlutafé. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur     
 samtals kr. 548.691.902.  VÍS á nú samtals 3,05% af heildarhlutafé félagsins   
 sem er 2.296.436.567.                                                          
Endurkaupáætlunin var framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr. 
 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.                                
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri í síma 560-5000 og 
 í netfangi:fjarfestatengsl@vis.is.