2016-08-08 22:26:53 CEST

2016-08-08 22:26:53 CEST


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

REITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 31. viku 2016 keypti Reitir fasteignafélag hf. 376.500 eigin hluti fyrir
30.873.000 kr. eins og hér segir: 

Dagsetnin  Tími        Keyptir  Viðskipta-v    Kaupverð       Eigin hlutir eftir
g                       hlutir          erð                            viðskipti
--------------------------------------------------------------------------------
2.8.2016   14:40       350.000         82,0  28.700.000               13.978.855
--------------------------------------------------------------------------------
2.8.2016   14:40        26.500         82,0   2.173.000               14.005.355
--------------------------------------------------------------------------------
Samtals                376.500               30.873.000                         
--------------------------------------------------------------------------------

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurnýjaða
endurkaupaáætlun félagsins sem hófst þann 16. mars 2016, sbr. tilkynningu til
Kauphallar þann 15. mars 2016. 

Reitir hafa nú keypt samtals 14.005.355 hluti í félaginu sem samsvarar 83,86%
af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð
hinna keyptu hluta nemur samtals 1.186.527.357 krónum. Reitir eiga nú samtals
15.408.575 hluti, eða 2,08% af heildarhlutafé félagsins. 

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 16.700.000 hlutir og
fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 1.500 milljónir króna. Framkvæmd
endurkaupaáætlunar lýkur þegar öðru hvoru framangreindu hefur verið náð, eða á
aðalfundardegi félagsins 2017. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við
hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.