|
|||
2011-11-15 15:00:04 CET 2011-11-15 15:01:05 CET REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - FyrirtækjafréttirJafnvægi náð í fjármálum Reykjavíkurborgar - AÐHALD Í STAÐ NIÐURSKURÐARÁkveðnu jafnvægi hefur verið náð í rekstri Reykjavíkurborgar eftir tímabil þriggja ára niðurskurðar. Tekist hefur að ná utan um erfiða fjárhagsstöðu borgarinnar og fyrirtækja hennar. Þetta kemur fram í frumvarpi til fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar fyrir árið 2012. Jón Gnarr, borgarstjóri, leggur frumvarpið fram til fyrri umræðu á fundi borgarstjórnar í dag. Nauðsynlegar aðgerðir sem farið var í til að bæta fjárhag Orkuveitu Reykjavíkur hafa eytt óvissu og skila sér nú í umtalsvert meira öryggi fyrir rekstur Reykjavíkurborgar. Niðurgreiðsla skulda Orkuveitunnar er þegar hafin. Nýgerðir kjarasamningar þýða verulegan kostnaðarauka fyrir Reykjavíkurborg. Fagsvið borgarinnar fá hækkun á fjárhagsáætlun sinni til að mæta þeim kostnaði en þurfa að öðru leyti áfram að beita ströngu aðhaldi í rekstri sínum. Fjárhagsáætlun ársins 2012 einkennist af ábyrgri fjármálastjórn. Sterkri stöðu borgarsjóðs verður viðhaldið til að tryggja fjármögnun Reykjavíkurborgar og fyrirtækja hennar á sem hagstæðustum kjörum. Háar skuldir fyrirtækja borgarinnar kalla á að skilað verði rekstrarafgangi næstu ár svo hægt verði að greiða niður skuldir. Valin er varfærin leið aðhalds í rekstri og hóflegra hækkana á þjónustugjöldum sem munu aðeins fylgja verðlagshækkunum. Reykjavíkurborg mun því áfram verða ódýrasta sveitarfélagið í þjónustu við barnafjölskyldur. Þá mun ekki verða dregið úr velferðarþjónustu borgarinnar. Fasteignagjöld lækka úr 0.225% í 0.2%. Tekjur af fasteignaskatti af íbúðarhúsnæði lækka um 75 milljónir króna en hefðu að óbreyttu hækkað um 230 mkr. Lóðarleiga vegna íbúðarhúsnæðis hækkar hins vegar úr 0.165% í 0.2% til mótvægis og fara tekjur af henni úr 258 milljónir króna í 350 mkr. Þetta tryggir að fasteignagjöld verða svipuð að krónutölu hjá langflestum fasteignaeigendum á milli ára. Reykjavíkurborg mun því áfram bjóða upp á ein lægstu álagningargjöld fasteigna á landinu. Framkvæmdastigi verður áfram haldið háu en varið verður 6.5 milljörðum í framkvæmdir sem snúast einkum um verkefni sem auka ekki fastan rekstrarkostnað borgarinnar. Enn fremur er opnað fyrir aukna lýðræðislega aðkomu almennings að fjárhagsáætlanavinnu við skiptingu smærri nýframkvæmda og viðhaldsverkefna í hverfum borgarinnar. Samráðsvefurinn Betri Reykjavík verður notaður til að taka við hugmyndum frá íbúum um þessi verkefni. Þau verða síðan kostnaðarmetin og að lokum stillt upp í rafræna, bindandi kosningu. Gert er ráð fyrir því að fjárhagsleg staða heildarreksturs Reykjavíkurborgar batni umtalsvert miðað við árið 2011. Samkvæmt áætluninni styrkist eiginfjárhlutfall á ný, veltufjárhlutfall batnar og hlutfall skuldsetningar lækkar. Nánari upplýsingar veitir aðstoðarmaður borgarstjóra: Sigurður Björn Blöndal í síma: 661 - 9899 |
|||
|