2016-04-08 10:37:11 CEST

2016-04-08 10:37:11 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Snæfellsbær - Ársreikningur

Góð afkoma af rekstri Snæfellsbæjar árið 2015


Fimmtudaginn 7. apríl 2016 var ársreikningur Snæfellsbæjar 2015 afgreiddur í
bæjarráð til fyrri umræðu í bæjarstjórn.  Eins og sveitarstjórnarlög kveða á
um, skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn. Fyrri
umræða um ársreikninginn var fimmtudaginn 7. apríl 2016 og síðari umræða verður
miðvikudaginn 4. maí n.k. 

Ársreikningurinn er settur fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga.
Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins
vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð
með skatttekjum en í B-hluta eru fyrirtæki sem eru í eigu sveitarfélagsins og
eru rekin sem fjárhagslega sjálfstæðar einingar, sem eru: Félagsheimilið Klifi,
Félagsheimilið Röst, Veitustofnanir Snæfellsbæjar, Hafnarsjóður Snæfellsbæjar,
Húsnæðisnefnd Snæfellsbæjar, Leiguíbúðir með hlutareign og Dvalarheimilið
Jaðar. 



Rekstur Snæfellsbæjar góður

Rekstur Snæfellsbæjar gekk vel á árinu og var rekstrarniðurstaðan nokkuð betri
en áætlun gerði ráð fyrir, eða um 188 millj. króna fyrir samantekinn
rekstrarreikning A- og B-hluta. 

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu um 2.078  millj. króna samkvæmt
samanteknum rekstrarreikningi fyrir A- og B-hluta en fjárhagsáætlun gerði ráð
fyrir rekstrartekjum um 1.893 millj. króna. Rekstrartekjur A- hluta námu um
1.642 millj. króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum um 1.493
millj. króna. 

Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A-
og B-hluta var jákvæð að fjárhæð um 188 millj. króna en samkvæmt fjárhagsáætlun
var gert ráð fyrir jákvæðri afkomu upp á 47 millj. króna. Rekstrarafkoman varð
því töluvert betri en áætlun gerði ráð fyrir, eða sem nemur 141 millj. króna. 
Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð að fjárhæð 106,4 millj. króna en
fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir jákvæðiri afkomu upp á 1,1  millj. króna. Afkoma
A-hluta varð því betri sem nemur 105,3 millj. króna.  Eigið fé sveitarfélagsins
í árslok nam 2.752 millj. króna skv. efnahagsreikningi en þar af nam eigið fé
A-hluta 2.185 millj. króna. 

Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins námu um 1.008 milljónum króna en
starfsmannafjöldi sveitarfélagsins nam 133 stöðugildum í árslok. 

Veltufé frá rekstri var 212 millj. króna og veltufjárhlutfall er 1,02. 
Handbært frá rekstri var 258 millj. króna. 

Heildareignir bæjarsjóðs námu um 3.467 millj. króna og heildareignir
sveitarfélagsins í samanteknum ársreikningi um 4.485 millj. króna í árslok
2015. Heildarskuldir bæjarsjóðs námu um 1.282 millj. króna og í samanteknum
ársreikningi um 1.733 millj. króna, og lækkuðu þar með milli ára um 41
milljónir.  Eigið fé bæjarsjóðs nam um 2.185 millj. króna og eigið fé í
samanteknum reikningsskilum nam um 2.752 millj. króna í árslok 2015. 
Eiginfjárhlutfall er 63,03% á á árinu 2015 en var 59,44% árið áður. 

Snæfellsbær fjárfesti á árinu fyrir 219,2 milljónir í varanlegum
rekstrarfjármunum og ný lán voru tekin að upphæð 41 milljónir. Greidd voru
niður lán að fjárhæð 155,2 milljónir. 

Hlutfall reglulegra tekna af heildarskuldum og skuldbindingum er 74,37% hjá
sjóðum A-hluta, en var 84,62% árið 2014, og 76,80% í samanteknum ársreikningi
en var 86,35% árið 2014.  Skv. 64. gr. 2. málsgr. sveitarstjórnarlaga á þetta
hlutfall ekki að vera hærra en 150%.  Fjárhagsstaða Snæfellsbæjar verður því að
teljast afar góð. 

Álagningarhlutfall útsvars var 14,52%. Álagningahlutfall fasteignaskatts nam
0,44% á íbúðarhúsnæði og álagningarhlutfall á aðrar fasteignir nam 1,55% 


Nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri, Kristinn Jónasson, í síma 433-6900, eða
á kristinn@snb.is 

Hægt verður að nálgast ásreikninginn á bæjarskrifstofunni Klettsbúð 4,
Hellissandi, sími 433-6900. Einnig á heimasíðu Snæfellsbæjar, www.snb.is.