2014-05-15 20:00:58 CEST

2014-05-15 20:01:59 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hagar hf. - Hluthafafundir

Hagar hf. - Aðalfundur 5. júní 2013


Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn fimmtudaginn 5. júní 2014
og hefst hann kl. 09:00 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2 í
Reykjavík. 



Dagskrá fundarins:

  1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina á liðnu starfsári.
  2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár, ásamt skýrslu endurskoðanda,
     lagður fram til samþykktar.
  3. Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar félagsins á reikningsárinu 2013/14.
  4. Tillaga að breytingu á samþykktum félagsins.
     -- Grein 2.1 um hlutafé félagsins verði breytt þar sem hlutafé verði lækkað
        úr kr. 1.217.585.840 að nafnverði í kr. 1.171.502.190 að nafnverði og
        eigin hlutafé, að nafnvirði kr. 46.083.650, þannig eytt.
  5. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
  6. Tillögur stjórnar um starfskjarastefnu.
  7. Kosning stjórnar félagsins og endurskoðanda.
  8. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.



Tillögur stjórnar Haga hf.:

  1. Ársreikningur (dagskrárliður 2)

Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund að ársreikningur félagsins fyrir
starfsárið 2013/14, ásamt skýrslu endurskoðanda, verði samþykktur. 



  1. Ráðstöfun hagnaðar (dagskrárliður 3)

Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund að greiddur verði arður til hluthafa
vegna reikningsársins 2013/14 sem nemur 1,0 krónu á hlut, eins og fram kemur í
ársreikningi félagsins. Heildararðgreiðslan nemur því rúmum 1.172 milljónum
króna. 

Samþykki aðalfundur tillöguna skal arðsréttindadagur vera 11. júní 2014.
Arðleysisdagur, þ.e. sá dagur sem viðskipti hefjast með bréf félagsins án
réttar til arðs vegna reikningsársins 2013/14 verður því 6. júní 2014, eða
næsti viðskiptadagur eftir aðalfund. Útborgunardagur arðgreiðslu verður 27.
júní 2014. 



  1. Tillaga að breytingu á samþykktum félagsins (dagskrárliður 4)

Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund félagsins að lækka hlutafé félagsins
sem felur í sér að eftirfarandi breyting verði gerð á grein 2.1 í samþykktum
félagsins: 

  -- Hlutafé félagsins verði lækkað úr kr. 1.217.585.840 að nafnverði í kr.
     1.171.502.190 að nafnverði og eigin hlutafé, að nafnvirði kr. 46.083.650,
     þannig eytt.



  1. Þóknun til stjórnarmanna (dagskrárliður 5)

Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund að stjórnarlaun verði óbreytt eða sem
hér segir: Stjórnarformaður kr. 500.000,- á mánuði og stjórnarmenn kr.
250.000,- á mánuði. 



  1. Starfskjarastefna (dagskrárliður 6)

Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund félagsins að meðfylgjandi
starfskjarastefna verði samþykkt. 



  1. Kosning stjórnar félagsins og endurskoðanda (dagskrárliður 7)

Framboð til setu í stjórn Haga hf. skal berast skriflega til stjórnar félagsins
að minnsta kosti fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar. Upplýsingar um
frambjóðendur verða birtar að þeim fresti loknum. 

Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund félagsins að KPMG ehf., kt.
590975-0449, verði kosinn endurskoðandi félagsins fyrir komandi rekstrarár.
Endurskoðanda félagsins verður greitt í samræmi við útgefna og samþykkta
reikninga. 





Hluthafar sem ekki sjá sér fært að mæta til fundar og heimila ekki öðrum aðila
til að mæta á fund í sínu umboði geta tekið þátt í atkvæðagreiðslu á fundinum
bréflega. Meðfylgjandi má finna nánari leiðbeiningar og atkvæðaseðil. 

Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar fimmtudaginn 22. maí nk. Hluthöfum er
þó bent á að óski þeir eftir að fá mál sett á dagskrá eða leggja fram
ályktunartillögur á fundinum þarf að beina því skriflega og í endanlegu formi
til félagsstjórnar eigi síðar en 10 dögum fyrir fund (mánudaginn 26. maí nk.) á
netfangið adalfundur@hagar.is, eins og kveðið er á um í 1. og 2. mgr. 86. gr.
hlutafélagalaga, sbr. lög nr. 2/1995. Kann endurskoðuð dagskrá að birtast þann
dag. Hluthöfum er einnig  bent á að hægt er að tilkynna um framboð til stjórnar
skriflega skemmst 5 dögum fyrir aðalfund. Upplýsingar um frambjóðendur til
stjórnar verða tilkynntar eigi síðar en 2 dögum fyrir fund. 

Stjórn félagsins vill árétta að forsvarsmenn hluthafa sem sækja fundinn, þ.e.
forsvarsmenn fyrirtækja, lífeyrissjóða, fjárfestingasjóða, einstaklinga eða
annarra hluthafa, ber að skila umboði við skráningu inn á fundinn. Einnig verða
einstaklingar beðnir um að framvísa persónuskilríkjum. 



                                Stjórn Haga hf.