2008-08-29 11:28:24 CEST

2008-08-29 11:29:24 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
KFF Institutional Investor Fund - Ársreikningur

- Afkoma fagfjárfestasjóðsins KFF Institutional Investor Fund á tímabilinu 1. janúar-30. júní 2008


Framsetning árshlutareiknings fagfjárfestasjóðsins KFF Institutional Investor
Fund er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem
settar eru af Fjármálaeftirlitinu.
•  Hagnaður varð af rekstri sjóðsins á fyrri helmingi ársins 2008 að fjárhæð 0
   m.kr. samkvæmt rekstrarreikningi, en KFF Institutional Investor Fund er
   útgefandi skuldabréfaflokkanna KFF24 og KFF44 sem hafa verið teknir til
   viðskipta í OMX Nordic Exchange Iceland hf. 
•  Eigið fé sjóðsins nam í lok tímabilsins 1 m.kr. skv. efnahagsreikningi.
•  Árshlutareikningurinn var kannaður af KPMG hf. sem telur að við könnun sína
   hafi ekkert komið fram sem bendir til annars en að árshlutareikningurinn gefi
   glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, efnahag hans 30. júní 2008 og
   breytingu á hreinni eign á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga. 

Eigið fé Rekstrarfélags Kaupþings banka hf., sem er rekstraraðili KFF
Institutional Investor Fund, þann 30. júní 2008 nam 3.532 m.kr. samkvæmt
efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall sem reiknað er samkvæmt lögum um
fjármálafyrirtæki er 59,7% en samkvæmt lögunum má hlutfallið ekki vera lægra en
8,0%. Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. er dótturfélag Kaupþings banka hf. og
hluti af samstæðureikningi bankans og dótturfélaga hans. 

Hægt verður að nálgast árshlutareikning félagsins frá og með deginum í dag hjá
Rekstrarfélagi Kaupþings banka hf., Borgartúni 19, 105 Reykjavík. 
Nánari upplýsingar um árshlutareikning KFF Institutional Investor Fund veitir
Jón Finnbogason sjóðsstjóri í síma 444 6000.