2008-10-01 11:37:08 CEST

2008-10-01 11:38:02 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf. - Yfirtökutilboð

Samið um kaup Straums á þremur evrópskum dótturfélögum Landsbankans



Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hf. (Straumur) og Landsbanki
Íslands hf. (Landsbankinn) hafa skrifað undir samkomulag um kaup
Straums á meirihluta af erlendri starfsemi Landsbankans á sviði
fyrirtækjaráðgjafar og verðbréfamiðlunar fyrir 380 milljónir evra.
Kaupin eru háð samþykki eftirlitsaðila í viðkomandi löndum. Straumur
mun eignast Landsbanki Securities (UK) Limited og Landsbanki Kepler
að fullu, og einnig 84% hlut Landsbankans í Merrion Landsbanki.

Kaupverðið er greitt með reiðufé, útgáfu víkjandi láns og sölu
útlána. Eiginfjárstaða bankans er afar sterk eftir þessi viðskipti og
er eiginfjárhlutfallið yfir 20%.

Kaupin styrkja verulega starfsemi Straums á sviði fyrirtækjaráðgjafar
og verðbréfamiðlunar í Evrópu. Hjá fyrirtækjunum sem um ræðir starfa
alls um 680 manns í 9 Evrópulöndum auk Bandaríkjanna, sem þýðir að
eftir kaupin starfa 1.200 starfsmenn í 18 löndum hjá Straumi og
dóttur- og hlutdeildarfélögum bankans.

Fyrirtækin þrjú, sem samkomulagið lýtur að, búa að traustum
viðskiptasamböndum og stórum hópi viðskiptamanna í öllum helstu
fjármálamiðstöðvum Evrópu. Rétt eins og Straumur hafa þau einkum
einbeitt sér að meðalstórum fyrirtækjum og lagt áherslu á staðbundna
þekkingu og ráðgjöf. Samanlagt munu greinendur hinnar nýju samstæðu
veita ráðgjöf um fjárfestingar í yfir eitt þúsund evrópskum
fyrirtækjum.

Samanlagðar tekjur fyrirtækjanna þriggja sem keypt eru námu á síðasta
ári 232 milljónum evra. Samanlagður hagnaður þeirra fyrir skatt nam
30 milljónum evra.

Landsbanki Kepler - meginland Evrópu og Bandaríkin
*  Starfsmenn eru 381 í 7 löndum: Frakklandi, Hollandi, Ítalíu,
  Spáni, Sviss, Þýskalandi og Bandaríkjunum
*  Leiðandi verðbréfafyrirtæki í Evrópu með staðbundna þekkingu á
  mörgum mörkuðum
*  64 greinendur fylgjast með og greina um 500 evrópsk fyrirtæki
*  Áætluð 2-5% markaðshlutdeild á verðbréfamörkuðum á hverju
  starfssvæði fyrir sig
*  Rekur einnig fyrirtækjaráðgjöf og eignastýringu

Landsbanki Securities (UK) Limited - Bretland
*  Starfsmenn eru 196 í London og Edinborg
*  Áður starfrækt undir merkjum Teather & Greenwood og Bridgewell
*  Verðbréfamiðlun og greiningarþjónusta sem lýtur einkum að litlum
  og meðalstórum fyrirtækjum í Bretlandi
*  Áætluð markaðshlutdeild er 3,7% af veltu með félög í FTSE250
  vísitölunni í Bretlandi

Merrion Landsbanki - Írland
*  101 starfsmaður á Írlandi
*  Í fremstu röð í verðbréfamiðlun og fyrirtækjaráðgjöf á Írlandi
*  Rekur einnig eignastýringu og sjóðsstýringu
*  Fylgist með og greinir öll helstu fyrirtæki á Írlandi sem skráð
  eru á markað

William Fall, forstjóri Straums:"Straumur hefur með þessu nýtt einstakt tækifæri sem bauðst til að
auka umsvif bankans verulega, hasla honum völl á sviði
fjárfestingabankastarfsemi og verðbréfamiðlunar á öllum helstu
mörkuðum Evrópu og auka jafnframt vægi þeirrar starfsemi sem snýr að
þjónustu við viðskiptavini. Þetta er stórt skref fram á við fyrir
bankann og samrýmist þeirri stefnu okkar að leggja aukna áherslu á
þóknunartekjur og draga úr vægi langtímalánveitinga og eigin
viðskipta í rekstrinum. Við teljum mikil verðmæti í því fólgin að
veita þjónustu á grundvelli staðbundinnar sérþekkingar og ljóst er að
fyrirtækin sem um ræðir, sem öll eru þekkt og mikils metin á
starfssvæðum sínum, efla okkur verulega að þessu leyti."

Straumur boðar til blaðamannafundar af þessu tilefni klukkan 10:00 í
dag í höfuðstöðvum bankans að Borgartúni 25, 8. hæð.

Nánari upplýsingar veitir:
Ólafur Teitur Guðnason, fjölmiðlafulltrúi
Sími: 858 6778
Netfang: olafur.gudnason@straumur.net