2012-08-29 20:59:31 CEST

2012-08-29 21:00:31 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Orkuveita Reykjavíkur - Fyrirtækjafréttir

Tilkynning frá Orkuveitu Reykjavíkur


Reykjavík, 2012-08-29 20:59 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Vegna hugsanlegra
breytinga á eignarhaldi HS Orku, sem tilkynnt var um 29. júní sl.,  hefur
Orkuveita Reykjavíkur (OR) ákveðið að kanna hvort viðunandi verð bjóðist fyrir
skuldabréf útgefið af Magma Energy Sweden (MES) að fjárhæð USD 67.891.888.
Skuldabréfið, sem er með gjalddaga í desember 2016, var hluti greiðslu MES
fyrir hlut OR í HS Orku. Hluturinn var seldur árið 2009 eftir að
samkeppnisyfirvöld höfðu sett skorður við eignarhaldi OR í HS Orku. Hlutabréf
Magma í HS Orku standa að veði fyrir greiðslum af bréfinu.