|
|||
2012-08-30 13:12:12 CEST 2012-08-30 13:13:14 CEST REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - ÁrsreikningurÁrshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar - júní 2012Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar-júní 2012 var lagður fram í borgarráði í dag fimmtudaginn 30. ágúst. Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, þ.e. rekstur fagsviða, og Eignasjóð. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Bílastæðasjóður Reykjavíkur, Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Orkuveita Reykjavíkur, Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Jörundar ehf. Rekstrarniðurstaða A-hluta var neikvæð um 2.807 mkr en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði neikvæð um 2.271 mkr á tímabilinu. Niðurstaðan er því lakari en gert var ráð fyrir, sem nemur 537 mkr. Afkoma A-hluta er lakari en áætlað var eða neikvæð um 2,8 milljaða. Meginástæða þessarar óhagstæðu niðurstöðu má rekja til gjaldfærslu lífeyrisskuldbindingar en hún nemur 1.300 mkr skv. bráðabirgðamati en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 300 mkr. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var neikvæð um 1.842 mkr en áætlun gerði ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu um 1.358 mkr eða 483 mkr verri en áætlun gerði ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A og B hluta, var neikvæð um 4.464 mkr en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 277 mkr. Viðsnúning í rekstri má einkum finna í fjármagnsliðnum sem var neikvæður um 12.555 mkr en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir að hann væri neikvæður um 6.143 mkr. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 7.085 mkr sem er um 364 mkr lakara niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir. Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í lok ársins samtals 460.612 mkr, heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 318.452 mkr og eigið fé nam 142.160 mkr en þar af nam hlutdeild meðeigenda 7.864 mkr. Fjárhagslegur styrkur A-hluta borgarsjóðs er mikill hvort sem litið er til eiginfjárstöðu eða hefðbundinna skuldaþekjuhlutfalla. Eiginfjárhlutfall, skuldahlutfall og sjóðstreymi samstæðunnar er einnig að styrkjast. Reykjavík, 30. ágúst 2012. |
|||
|