|
|||
2024-06-19 00:00:00 CEST 2024-06-19 00:00:01 CEST REGULATED INFORMATION Marel hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarMarel: Sameiginleg fjárfestakynning vegna fyrirhugaðs yfirtökutilboðs JBT í MarelMarel vekur athygli á tilkynningu frá John Bean Technologies Corporation („JBT“) í tengslum við fyrirhugað yfirtökutilboð í allt útgefið og útistandandi hlutafé í Marel. JBT tilkynnti í dag að gert sé ráð fyrir að samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands („FME“) á tilboðsyfirliti og verðbréfalýsingu í tengslum við valfrjálst yfirtökutilboð JBT í Marel liggi fyrir innan skamms. JBT mun leggja yfirtökutilboðið fram þegar samþykki FME hefur borist. Símafundur fyrir fjárfesta fimmtudaginn 20. júní Vinsamlegast athugið að fundinum verður streymt í hljóðútsendingu á eftirfarandi vefsíðu: Skráning á símafund. Upptaka af fundinum verður aðgengileg að fundi loknum. Til þess að leggja fram spurningar á fundinum þarf að skrá sig á eftirfarandi vefsíðu: Skráning vegna spurninga. Kynningarefni fundarins verður aðgengilegt á fjárfestasíðum JBT, Marel og á vef Arion banka. Fjárfestakynning á Íslandi og beint streymi mánudaginn 24. júní Skrá þarf mætingu á fundinn fyrirfram þar sem húsrúm er takmarkað, en skráning fer fram hér: Skráning á fjárfestafund JBT og Marel. Fréttatilkynningu JBT má finna sem viðhengi. |
|||
|