|
|||
2014-08-29 22:14:35 CEST 2014-08-29 22:15:37 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - ÁrsreikningurSamandregin samstæðuárshlutareikningur Íbúðalánasjóðs janúar-júní 2014Fréttatilkynning 29. ágúst 2014 Árshlutareikningur Íbúðalánasjóðs fyrir fyrri helming ársins 2014 var staðfestur af stjórn sjóðsins í dag. Rekstrarniðurstaða tímabilsins var neikvæð sem nemur 1.308 milljónum króna samanborið við 2.979 milljóna króna tap á sama tímabili árið á undan. Eigið fé Íbúðalánasjóðs í lok tímabilsins var 13.538 milljónir samanborið við 14.845 milljónir í árslok 2013. Eiginfjárhlutfall sjóðsins sem reiknað er samkvæmt ákvæðum í reglugerð nr. 544/2004 um Íbúðalánasjóð er 3,2% en var 3,4% í upphafi árs. Hlutfallið er reiknað með sama hætti og eiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja. Langtímamarkmið sjóðsins er að hlutfallið sé yfir 5,0% og viðræður við stjórnvöld miða að því að uppfylla ákvæði reglugerðar. Árshlutauppgjörið er nú í fyrsta sinn framsett sem samstæða móðurfélags og dótturfélags sjóðsins Leigufélagsins Kletts ehf. sem tók formlega til starfa í upphafi tímabilsins. |
|||
|