|
|||
2014-04-07 18:35:24 CEST 2014-04-07 18:36:25 CEST REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - FyrirtækjafréttirFlutningatölur mars 2014Í mars flutti félagið 159 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 10% fleiri en í mars á síðasta ári. Framboðsaukning í sætiskílómetrum nam 17%. Framboðsaukning til N-Ameríku var 28% m.a. vegna flugs á nýjan áfangastað í leiðakerfinu, Edmonton, ásamt því að flug til Toronto og Washington og var aukið töluvert. Framboðsaukning á Evrópuleiðum nam 5%. Sætanýting var 78,2% og lækkaði um 1,1 prósentustig á milli ára. Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru um 24 þúsund í mars sem er fækkun um 7% á milli ára. Framboð félagsins í mars var dregið saman um 4% samanborið við fyrra ár. Sætanýting nam 72,0% og dróst saman um 2,1 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 21% á milli ára. Fraktflutningar í áætlunarflugi jukust um 10% frá því á síðasta ári. Seldum gistinóttum á hótelum félagsins fjölgaði um 8% miðað við mars 2013. Herbergjanýting var 78,5% en hún nam 72,7% í mars í fyrra. MILLILANDAFLUG MAR 14 MAR 13 BR. (%) ÁTÞ 14 BR. (%) -------------------------------------------------------------------------------- Fjöldi farþega 159.314 144.997 10% 397.250 11% Sætanýting 78,2% 79,2% -1,1 %-stig 74,3% 0,2 %-stig Framboðnir sætiskm. 615,9 526.363 17% 1.578,5 15% (ASK'000.000) INNANLANDSFLUG OG MAR 14 MAR 13 BR. (%) ÁTÞ 14 BR. (%) GRÆNLANDSFLUG -------------------------------------------------------------------------------- Fjöldi farþega 24.089 26.016 -7% 65.122 -8% Sætanýting 72,0% 74,2% -2,1 %-stig 70,5% -0,2 %-stig Framboðnir sætiskm. 11,1 11.578 -4% 29,5 -6% (ASK'000.000) LEIGUFLUG MAR 14 MAR 13 BR. (%) ÁTÞ 14 BR. (%) -------------------------------------------------------------------------------- Flugvélanýting 100,0% 90,0% 10,0 %-stig 100,0% 18,0 %-stig Seldir blokktímar 1.807 2.275 -21% 6.113 -15% FRAKTFLUTNINGAR MAR 14 MAR 13 BR. (%) ÁTÞ 14 BR. (%) -------------------------------------------------------------------------------- Framboðnir tonnkm. 15.607 14.586 7% 42.828 7% (ATK´000) Seldir tonnkm. (FTK´000) 8.799 7.994 10% 24.285 8% HÓTEL MAR 14 MAR 13 BR. (%) ÁTÞ 14 BR. (%) -------------------------------------------------------------------------------- Framboðnar gistinætur 22.909 22.940 0% 66.569 0% Seldar gistinætur 17.973 16.671 8% 44.812 7% Herbergjanýting 78,5% 72,7% 5,8 %-stig 67,3% 4,4 %-stig Nánari upplýsingar veita: Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801 Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010 |
|||
|