2016-11-25 13:00:34 CET

2016-11-25 13:00:34 CET


REGLERAD INFORMATION

Isländska
Alda Credit Fund slhf. - Fyrirtækjafréttir

Alda Credit Fund slhf. : Birting lýsingar


Alda Credit Fund slhf., kt. 531114-0510, Borgartúni 27, 105 Reykjavík, Íslandi
hefur birt lýsingu sem samanstendur af samantekt dagsettri 25. nóvember 2016,
verðbréfalýsingu dagsettri 25. nóvember 2016 og útgefendalýsingu dagsettri 29.
ágúst 2016 sem uppfærð er í verðbréfalýsingunni dagsettri 25. nóvember 2016.
Lýsingin er birt í tengslum við umsókn um stækkun skuldabréfaflokksins ACF 15 1
sem skráður er á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. Lýsingin hefur verið staðfest
af Fjármálaeftirlitinu í samræmi við ákvæði laga um verðbréfaviðskipti nr.
108/2007. 
Skuldabréfaflokkurinn ACF 15 1 stækkar um 2.720.000.000 krónur að nafnvirði.
Viðbótin er seld til eigenda áður útgefinna skuldabréfa í skuldabréfaflokknum í
samræmi við fjárfestingarloforð. Sótt hefur verið um töku stækkunarinnar að
nafnverði 2.720.000.000 krónur til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf.
Stærð skuldabréfaflokksins eftir stækkun verður 6.060.000.000 krónur. Alda
Credit Fund slhf. fullnýtir þar meðheimild til útgáfu skuldabréfa sem skv.
samþykktum félagsins er 6.060.000.000 krónur. 
Lýsingin er á íslensku og er birt á rafrænu formi á vef Alda Credit Fund slhf.,
www.acfslhf.is. Fjárfestar geta einnig nálgast útprentuð eintök af lýsingunni
sér að kostnaðarlausu hjá Alda Credit Fund ehf., Borgartúni 27, 105 Reykjavík. 
Nasdaq Iceland hf. mun birta tilkynningu um töku skuldabréfanna til viðskipta
og hvenær viðskipti með þau geti hafist með a.m.k. eins viðskiptadags
fyrirvara. 
Nánari upplýsingar veitir Þorkell Magnússon, framkvæmdastjóri Alda Credit Fund
slhf., í síma 510-1090.