2016-11-28 16:10:07 CET

2016-11-28 16:10:07 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kvika banki hf. - Fyrirtækjafréttir

Kvika banki hf.: Viljayfirlýsing um undirbúning samruna Kviku banka hf. og Virðingar hf.





Tilkynning



                                                    Reykjavík, 28. nóvember 2016



                     Viljayfirlýsing um undirbúning samruna

Stjórnir  Kviku banka hf.  og Virðingar hf.  hafa undirritað viljayfirlýsingu um
undirbúning samruna félaganna undir nafni Kviku.

Í  aðdraganda sameiningar verður eigið fé  Kviku lækkað um 600 m.kr. og lækkunin
greidd  til hluthafa bankans. Hluthafar Kviku munu eftir samruna eiga 70% hlut í
sameinuðu félagi og hluthafar Virðingar 30%.

Með  sameiningu Kviku  og Virðingar  yrði til  öflugt fjármálafyrirtæki sem væri
leiðandi  á fjárfestingabankamarkaði. Sameinað  félag yrði einn  stærsti aðili í
eignastýringu  á Íslandi með um 220 milljarða króna í stýringu og fjölda sjóða í
rekstri  s.s. verðbréfasjóði,  fjárfestingasjóði, framtakssjóði, fasteignasjóði,
veðskuldabréfasjóði  og ýmsa  fagfjárfestasjóði. Auk  þess myndi  sameinað félag
ráða  yfir öflugum markaðsviðskiptum, fyrirtækjaráðgjöf, sérhæfðri lánastarfsemi
og einkabankaþjónustu.

Á  næstu vikum verður unnið að  samkomulagi um helstu skilmála fyrir samrunanum,
þ.m.t.   um  forsendur,  gerð  áreiðanleikakannana,  endanlega  samningsgerð  og
aðgerðar-  og tímaáætlun. Ef sameining félaganna nær  fram að ganga er stefnt að
því að hún taki gildi um mitt næsta ár.

Nánari upplýsingar veita:
Þorsteinn Pálsson, stjórnarformaður Kviku banka hf. í síma 540 3200.
Kristín Pétursdóttir, stjórnarformaður Virðingar hf. í síma 565 8500.




[]