|
|||
![]() |
|||
2016-11-30 18:24:20 CET 2016-11-30 18:24:20 CET REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA HB Grandi hf. - ÁrsreikningurUppgjör HB Granda hf. á þriðja ársfjórðungi 2016-- Rekstrartekjur samstæðunnar á þriðja árfjórðungi voru 57,2 m€ og 152,5 m€ á fyrstu níu mánuðum ársins (3F 2015: 56 ,2 m€, fyrstu níu mánuðum 2015: 166,6 m€) -- EBITDA nam 19,2 m€ á þriðja ársfjórðungi og 40,1 m€ á fyrstu níu mánuðum ársins (3F 2015: 15,6 m€, fyrstu níu mánuðum ársins 2015: 46,9 m€) -- Hagnaður á þriðja ársfjórðungi var 12,7 m€ og á fyrstu níu mánuðum ársins 25,2 m€ (3F 2015: 9,1 m€, fyrstu níu mánuði 2015: 31,2 m€) -- Handbært fé frá rekstri nam 14,5 m€ á fyrstu níu mánuðum ársins (fyrstu níu mánuðir árins 2015: 26,6 m€) Rekstur fyrstu níu mánaða ársins 2016 Rekstrartekjur HB Granda hf. á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 námu 152,5 m€, samanborið við 166,6 m€ árið áður. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 40,1 m€ eða 26,3% af rekstrartekjum, en var 46,9 m€ eða 28,2% árið áður. Áhrif fjáreignatekna og fjármagnsgjalda voru neikvæð um 1,9 m€, en voru neikvæð um 1,2 m€ á sama tíma árið áður. Áhrif hlutdeildarfélags voru jákvæð um 3,0 m€, en voru neikvæð um 2,9 m€ árið áður. Hagnaður fyrir tekjuskatt var 30,1 m€ og hagnaður tímabilsins var 25,2 m€. Efnahagur Heildareignir félagsins námu 457,7 m€ í lok september 2016. Þar af voru fastafjármunir 365,9 m€ og veltufjármunir 91,8 m€. Eigið fé nam 249,2 m€, eiginfjárhlutfall í lok september var 54,4%, en var 62,2% í lok árs 2015. Heildarskuldir félagsins voru í septemberlok 208,5 m€. Sjóðstreymi Handbært fé frá rekstri nam 14,5 m€ á tímabilinu, en nam 26,6 m€ á sama tíma fyrra árs. Fjárfestingarhreyfingar námu 48,5 m€. Fjármögnunarhreyfingar voru jákvæðar um 34,0 m€. Handbært fé í lok september var því 11,2 m€ sem er það sama og í árslok 2015. Meginniðurstöður færðar til íslenskra króna Séu niðurstöður rekstrarreiknings reiknaðar til íslenskra króna á meðalgengi fyrstu níu mánaða árins 2016 (1 evra = 137,18 kr) verða tekjur 20,9 milljarðar króna, EBITDA 5,5 milljarður og hagnaður 3,5 milljarðar. Séu niðurstöður efnahagsreiknings reiknaðar til íslenskra króna á gengi 30. september 2016 (1 evra = 127,52 kr) verða eignir samtals 58,4 milljarðar króna, skuldir 26,6 milljarðar og eigið fé 31,8 milljarðar. Skipastóll og afli Skipafloti félagsins var óbreyttur frá áramótum. Á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 var afli skipa félagsins 37 þúsund tonn af botnfiski og 80 þúsund tonn af uppsjávarfiski. Kynningarfundur þann 1. desember 2016 Opinn kynningarfundur um afkomu félagsins á þriðja ársfjórðungi verður haldinn fimmtudaginn 1. desember klukkan 8:30 í höfuðstöðvum félagsins að Norðurgarði 1. Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri mun kynna uppgjörið og svara spurningum. |
|||
|