2016-12-01 09:57:30 CET

2016-12-01 09:57:30 CET


SÄÄNNELTY TIETO

Islanti Englanti
HS Orka hf. - Fyrirtækjafréttir

HS Orka hf. tilkynnir jákvæða niðurstöðu gerðardómsmáls


HS Orku hf. hefur borist jákvæð niðurstaða í gerðardómsmálinu sem varðaði gildi
orkusölusamnings milli HS Orku hf. og Norðuráls Helguvíkur ehf. 

Gerðardómurinn komst að þeirri niðurstöðu að orkusölusamningurinn væri sökum
tiltekinna kringumstæðna ekki lengur í gildi. Ennfremur var það niðurstaða
gerðardómsins að lok samningsins væru ekki af völdum HS Orku og öllum
gagnkröfum Norðuráls Helguvíkur ehf. í málinu var hafnað. 

Ásgeir Margeirsson forstjóri HS Orku hf. sagði af þessu tilefni: „Við erum
ánægð að þetta langvinna mál sé nú að baki. Þessi niðurstaða mun gera okkur
kleift að leita nýrra samningstækifæra á Íslandi án takmarkana eftir því sem ný
orka verður til reiðu.“ 

Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku hf., í síma
+354 855-9301.