|
|||
![]() |
|||
2014-12-22 13:20:31 CET 2014-12-22 13:21:32 CET REGULATED INFORMATION Fljótsdalshérað - FyrirtækjafréttirArion banki fjármagnar innlausn leigusamninga við Eignarhaldsfélagið Fasteign ehf.Arion banki fjármagnar innlausn leigusamninga við Eignarhaldsfélagið Fasteign ehf. Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti á fundi sínum þann 3. desember sl. að nýta á árinu 2014 kaupréttarákvæði í leigusamningi við Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. með kaupum á þeim fasteignum sem falla undir þann samning . Um er að ræða 6 deilda leikskólahúsnæði við Skógarlönd á Egilsstöðum og gervigrasvöll ásamt þjónusturými í Fellabæ. -- Fjárhæð leiguskuldbindingar nam um 697 millj. kr. skv. ársreikningi Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2013. -- Samþykkt var að ganga til samninga við Arion banka um fjármögnun verkefnisins á grundvelli tilboðs frá bankanum frá í nóvember sl. og gefur Fljótsdalshéraði möguleika á að leysa til sín leiguskuldbindingar Fasteignar á hagkvæman hátt. Lánasamningur verður undirritaður í dag þann 22. desember 2014. -- Áhrif þessara kaupa og endurfjármögnunar hefur ekki áhrif á samþykktar áætlanir Fljótsdalshéraðs fyrir árin 2015-2018. Áætlun um að lögbundnu skuldaviðmiði fyrir samstæðureikning sveitarfélagsins verði náð undir 150% árið 2019 stendur óbreytt. -- Fljótsdalshéraðs mun því frá og með 31.12.2014 ekki verða hluthafi í Eignarhaldsfélaginu Fasteign ehf. Nánari upplýsingar veita: Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Guðlaugur Sæbjörnsson, fjármálastjóri |
|||
|