2008-10-03 11:40:11 CEST

2008-10-03 11:41:06 CEST


Islandic English
Exista hf. - Fjárhagsdagatal

Birting og kynning á uppgjöri þriðja ársfjórðungs 2008


Birting og kynning á uppgjöri þriðja ársfjórðungs 2008

Exista hf. mun birta afkomu þriðja ársfjórðungs eftir lokun markaða
fimmtudaginn 30. október næstkomandi. Vakin er athygli á því að uppgjörið
verður birt degi fyrr en auglýst hefur verið í fjárhagsdagatali félagsins. 

Kynningarfundur í Reykjavík 31. október
Kynning á uppgjöri þriðja ársfjórðungs fer fram föstudaginn 31. október og
hefst stundvíslega kl. 8:30. Þar munu stjórnendur félagsins gera grein fyrir
árshlutareikningnum og svara fyrirspurnum. 

Kynningarfundurinn fer fram í höfuðstöðvum Exista að Ármúla 3 í Reykjavík.
Húsið opnar kl. 8:00 og verður boðið upp á léttan morgunverð. Kynningin fer
fram á ensku og er opin hluthöfum og öðrum markaðsaðilum. 


Netvarp og símafundur 31. október
Kynningarfundinum í Reykjavík verður varpað í beinni útsendingu á vef Exista,
www.exista.is, og hefst netvarpið kl. 8:30. Jafnframt er hægt að taka þátt í
fundinum símleiðis og leggja fram spurningar með því að hringja í síma 800 8660
eða +44 (0)20 3043 2436 (breskt númer). 

Að fundi loknum verður hægt að nálgast kynningarefni og upptöku af fundinum á
vef félagsins, www.exista.is. 


Kynningarfundur í London 3. nóvember
Mánudaginn 3. nóvember verður haldinn kynningarfundur í London um uppgjör
þriðja ársfjórðungs 2008 og hefst fundurinn stundvíslega kl. 9:00. Þar munu
stjórnendur félagsins gera grein fyrir árshlutareikningnum og svara
fyrirspurnum. 

Kynningarfundurinn fer fram á skrifstofu félagsins að 3 Sheldon Square,
Paddington Central, W2 6HY. Húsið opnar kl. 8:30 og verður boðið upp á léttan
morgunverð. 

Frekari upplýsingar veitir:
Samskiptasvið Exista
Svana Huld Linnet
sími: 550 8623
ir@exista.com