2016-04-15 17:56:59 CEST

2016-04-15 17:56:59 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjaneshöfn - Fyrirtækjafréttir

Tilkynning um fjármál Reykjaneshafnar og birting ársreiknings í viku 16


Vísað er til fyrri tilkynninga um fjármál Reykjaneshafnar.

Með tilkynningum Reykjanesbæjar og Reykjaneshafnar sem birtust í gær, 14.
apríl, kom fram að minnihluti kröfuhafa hefði synjað að ganga til samninga á
grundvelli   samkomulags um fjárhagslega endurskipulagningu sveitarfélagsins og
stofnana þess. 

Með tilkynningu Reykjaneshafnar, sem birt var þann 16. mars sl., var greint frá
því að kröfuhafar Reykjaneshafnar hefðu framlengt samþykki sitt um
greiðslufrest og kyrrstöðutímabil Reykjaneshafnar til og með 15. apríl 2016. 

Að fenginni synjun minnihluta kröfuhafa að ganga til samkomulags er ljóst að
til greiðslufalls á skuldbindingum Reykjaneshafnar kemur eftir 15. apríl 2016,
að öllu óbreyttu. 

Í tilkyninningu Reykjaneshafnar þann 29. mars sl. kom fram að ársreikningur
Reykjaneshafnar yrði birtur í viku 15.  Ljóst er að birting ársreiknings
seinkar um viku og verður hann birtur í viku 16 þess í stað 



Halldór K Hermannsson,

hafnarstjóri Reykjaneshafnar.