2016-04-15 18:03:45 CEST

2016-04-15 18:03:45 CEST


REGLERAD INFORMATION

Isländska
Reginn hf. - Fyrirtækjafréttir

Reginn hf. undirritar þjónustusamning við ISS Ísland ehf.


Reginn hf. og ISS Ísland ehf. undirrituðu í dag þjónustusamning um yfirtöku á
meginhluta þeirra rekstrarþátta sem Fasteignaumsýsla Regins hefur sinnt.
Samningurinn er til 5 ára og yfirtaka samnings er miðuð við 21 apríl n.k.. 
Samningurinn tekur til stoð- og þjónustustarfsemi sem tilheyrir Smáralind og
Egilshöll s.s. ræstingar og þrif, sorp og förgun, þjónustuborð, öryggismál,
hús- og baðvarsla ásamt hluta af rekstri og viðhalds fasteigna auk
orkustýringar. Árlegt umfang samnings er um 200 m.kr. Ekki er gert ráð fyrir að
ráðstöfun þessi hafi umtalsverð áhrif á afkomu Regins hf. Hinsvegar er gert ráð
fyrir bættri kostnaðarstýringu og hærra þjónustustigi. Starfsmönnum Regins
samstæðunnar mun fækka verulega þar sem núverandi starfsfólk sem sinnir þessum
verkefnum mun flytjast yfir til ISS Íslands ehf. Þessi breyting mun skapa aukið
svigrúm fyrir stjórnendur Regins hf. og dótturfélaga til að einbeita sér að
kjarnastarfsemi félagsins. 

ISS Ísland ehf. hefur með þjónustu sinni skapað sér sérstöðu á þessum markaði
hér á Íslandi. Starfsfólk ISS Ísland ehf. eru um 720. ISS Ísland ehf. er í eigu
alþjóðafyrirtækisins ISS A/S sem er með höfuðstöðvar í Danmörku og starfar í 53
löndum. ISS A/S er fjórði stærsti einkarekni atvinnurekandi í heimi með um 515
þús starfsmenn. 

Við hlökkum til samstarfsins segir Helgi S. Gunnarsson forstjóri Regins hf. og
þá sérstaklega að fá aðgang að þeirri þekkingu og tækni sem móðurfélag ISS
hefur upp á að bjóða í fasteignaumsýslu m.a. vöktun og stýringu á orkunýtingu
ásamt greiningu á tækifærum í orkusparnaði. 

Þessi samningur hefur mikla þýðingu fyrir rekstur ISS á Islandi en með þessum
samningi okkar verður Reginn hf.  einn stærsti viðskiptavinur ISS Island,
jafnframt því sem við erum að feta okkur í nýjum útfærslum á þjónustu og fara
inn á svið rekstrar sem verður gaman að takast á við og þróa með Reginn hf.
segir Guðmundur Guðmundsson forstjóri ISS Island ehf. 



Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – S: 512 8900 / 899 6262