|
|||
![]() |
|||
2016-12-16 14:30:01 CET 2016-12-16 14:30:01 CET REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Reykjanesbær - ÁrsreikningurFjárhagsáætlun Reykjanesbæjar 2017 - 2020Reykjanesbæ, 16.12.2016. Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar fyrir árin 2017 – 2020, verður lögð fram til seinni umræðu þriðjudaginn 20. desember nk. Í fjárhagsáætluninni kemur fram að framlegð rekstrar A-hluta batnar verulega frá árinu 2015 sem og frá útkomuspá 2016 og verður um 1.511 m.kr. árið 2017. Í Sókninni sem var kynnt fyrir tveimur árum er gert ráð fyrir að framlegð úr rekstri bæjarins þyrfti að aukast um 900 m.kr. Rekstrarniðurstaða eftir afskriftir í bæjarsjóði er jákvæð og er um 1.173 m.kr. Gert er ráð fyrir að fjármagn vegna nýframkvæmda verði 300 m.kr. Einnig er gert ráð fyrir að á árinu 2017 verði leikskólaplássum fjölgað og á árinu 2018 verði byggður 1. áfangi nýs grunnskóla. Gert er ráð fyrir 1,6% íbúafjölgun árlega frá árinu 2017. Útsvar verður 15,05% á árinu 2017 en mun svo lækka aftur í 14,52% frá 1. janúar 2018. Hvað varðar skuldir og skuldbindingar Reykjanesbæjar og dótturfyrirtækja (Reykjaneshöfn og Fasteignir Reykjanesbæjar) þá er í þessari fjárhagsáætlun gert ráð fyrir endurskipulagningu efnahags. Helstu niðurstöður eru eftirfarandi: -- Rekstrarniðurstaða samstæðu (A+B hluti) árið 2017 er jákvæð um 386 m.kr. -- Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs (A hluti) árið 2017 er neikvæð um 187 m.kr. -- Eignir samstæðu árið 2017 er 45,8 milljarða.kr. -- Eignir bæjarsjóðs árið 2017 er um 24,5 milljarða.kr. -- Skuldir og skuldbindingar samstæðu árið 2017 er 39 milljarða.kr. -- Skuldir og skuldbindingar bæjarsjóðs árið 2017 er 21,3 milljarða.kr. -- Veltufé frá rekstri samstæðu árið 2017 er 3.523 m.kr. -- Veltufé frá rekstri bæjarsjóðs árið 2017 er 1.348 m.kr. -- Framlegð samstæðu árið 2017 er 21%. -- Framlegð bæjarsjóðs árið 2017 er 12% Nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri, Kjartan Már Kjartansson (kjartan.m.kjartansson@reykjanesbaer.is) |
|||
|