|
|||
2016-01-25 16:57:36 CET 2016-01-25 16:57:36 CET REGULATED INFORMATION Reitir fasteignafélag hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsREITIR: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ 3. viku 2016 keypti Reitir fasteignafélag hf. 271.542 eigin hluti fyrir 22.175.911 kr. eins og hér segir: Dagsetnin Tími Keyptir Viðskipta-ve Kaupverð Eigin hlutir eftir g hlutir rð viðskipti -------------------------------------------------------------------------------- 18.1.2016 10:14 250.000 81,50 20.375.000 11.884.862 -------------------------------------------------------------------------------- 22.1.2016 15:21 21.542 83,60 1.800.911 11.906.404 -------------------------------------------------------------------------------- Samtals 271.542 22.175.911 -------------------------------------------------------------------------------- Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 19. júní 2015, sbr. tilkynningu til Kauphallar þann 18. júní 2015. Reitir hafa nú keypt samtals 11.906.404 hluti í félaginu sem samsvarar 35,02% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 935.426.327 krónum. Reitir eiga nú samtals 1,58% af heildarhlutafé félagsins. Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 34.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 2.300 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016 en þó aldrei síðar en þann 29. febrúar 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við hlutafélagalög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005. |
|||
|