|
|||
![]() |
|||
2016-01-26 17:05:26 CET 2016-01-26 17:05:26 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. lýkur sölu sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn lauk í dag lokuðu útboði á LBANK CB 19, óverðtryggðum flokki sértryggðra skuldabréfa sem skráður er á Nasdaq Iceland. Alls bárust tilboð að fjárhæð 2.140 m. kr. í útboðinu og var tilboðum tekið fyrir 2.000 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 6,66%. Áður hefur Landsbankinn gefið út 7.280 m. kr. í sama flokki og nemur heildarstærð flokksins því 9.280 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 2. febrúar 2016 en Kvika sinnir viðskiptavakt með skuldabréf flokksins. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. |
|||
|