2017-03-14 14:40:44 CET

2017-03-14 14:40:44 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Garðabær - Ársreikningur

Garðabær - Ársreikningur 2016


Traust fjárhagsstaða Garðabæjar

Ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2016 lýsir sterkri fjárhagsstöðu
sveitarfélagsins.  Rekstrarafgangur nemur 1,7 milljarði kr. og að frádregnum
gatnagerðartekjum er rekstrarafgangur 766 millj. kr.  Í áætlun ársins var gert
ráð fyrir 312 millj. kr. rekstrarafgangi. 

Við gerð ársreikningsins hafa gatnagerðartekjur vegna Sjálandshverfis og
Akrahverfis sem færðar hafa verið sem fyrirframinnheimtar tekjur í efnahag
verið tekjufærðar og nema samtals 973 millj.kr. 

Betri rekstrarafkoma á árinu 2016 skýrist fyrst og fremst af fjölgun íbúa
umfram það sem gert var ráð fyrir í áætlun.  Í árslok 2016 voru íbúar
Garðabæjar 15.250 og hafði fjölgað um 603 frá árinu 2015 eða um 4,2% en í
fjárhagsáætlun hafði verið gert ráð fyrir 1,5% íbúafjölgun.  Fjölgun íbúa
umfram áætlun hefur í för með sér hækkun útsvarstekna. 

Rekstur málaflokka er í góðu samræmi við fjárhagsáætlun og frávik í stærstu
málaflokkum óveruleg. 

Kennitölur í rekstri bera vott um mjög trausta fjárhagsstöðu bæjarins. 
Skuldahlutfall er 79% en var 101% árið 2015.  Skuldaviðmið nemur 63%.  Veltufé
frá rekstri er 20,6%, veltifjárhlutfall 0,56 og eiginfjárhlutfall 56%. 

Fjárfestingar á árinu 2016 námu 1.209 millj. kr. en áætlun gerði ráð fyrir
1.228 millj. kr. Helstu framkvæmdir voru bygging nýs grunn- og leikskóla í
Urriðaholti fyrir rúmlega 400 millj. kr., og er stefnt að því að starfsemi
skólans hefjist í lok árs 2017.  Kaupverð fasteigna sem keyptar voru námu 304
millj. kr., framkvæmdir við gatnagerð námu um 650 millj. kr. (en tekjur ársins
af eignfærðri gatnagerð námu 376 millj. kr.), til íþróttamannvirkja var varið
um 160 millj. kr.  auk ýmissa annarra smærri verkefna. 

Sterk og öflug fjárhagsstaða Garðabæjar gerir það að verkum að sveitarfélagið
er vel í stakk búið til að mæta þjónustu við nýja íbúa samhliða mikilli
uppbyggingu í nýjum hverfum.  Í því sambandi má benda á byggingu skólahúsnæðis
í Urriðaholtinu þar sem auk grunn- og leikskóla verður  íþróttahús, kennslulaug
og bókasafn.    Í þriggja ára áætlun bæjarins er m.a. gert ráð fyrir að byggt
verði fjölnota íþróttahús austan Reykjanesbrautar, viðbyggingu við
Álftanesskóla, byggingu íbúða fyrir fatlað fólk við Unnargrund, endurnýjun
Hofsstaðavallar með gervigrasi auk ýmissa annarra verkefna. 



Gunnar Einarsson,

bæjarstjóri

S: 820-8541