|
|||
2013-11-26 12:38:58 CET 2013-11-26 12:39:58 CET REGULATED INFORMATION Reginn hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendumHjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir varamaður kemur inn í stjórn Regins hf.Frá og með föstudeginum 29. nóvember mun Guðrún Blöndal láta af störfum í stjórn Regins hf. Á sama tíma kemur í hennar stað Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir varamaður í stjórn Regins . Hjördís er með BS gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands. Hjördís hefur mikla stjórnunarreynslu en hún var árin 2010 -2012 framkvæmdastjóri Endurskipulagningar eigna hjá Landsbankanum ásamt því að leiða sameiningu SP fjármögnunar og Avant í nýtt svið Landsbankans sem heitir Bíla- og tækjafjármögnun Landsbankans. Hjördís hefur einnig starfað í Fjármálaráðuneytinu sem ráðgjafi Fjármálaráðherra frá 2009-2010. Stjórn og stjórnendur Regins bjóða hana velkomna í hópinn. Guðrún Blöndal hefur setið í stjórn Regins frá því í desember 2012. Guðrún er að hverfa til annarra starfa og þakkar stjórn og stjórnendur félagins henni fyrir vel unnin störf fyrir Regin og óskar henni góðs gengis á nýjum starfsvettvangi. <strong style="font-size: 11pt;">Nánari upplýsingar veitir: Helgi S. Gunnarsson Forstjóri Regins hf. S: 5128900 / 8996262 |
|||
|