2008-12-09 17:30:50 CET

2008-12-09 17:31:50 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Tilkynning um aukaútdrátt í rafrænum húsbréfum til greiðslu 15. desember 2008


Íbúðalánasjóður hefur, samkvæmt lögum um húsnæðisnál nr. 44/1998, með síðari
breytingum, heimild til aukaútdráttar húsbréfa. Þessi heimild er í samræmi við
heimild skuldara fasteignaveðbréfa til að greiða aukaafborganir af skuldabréfum
sínum eða að endurgreiða skuldina að fullu fyrir gjalddaga. Ákvæði þessa efnis
hafa verið í lögum um húsnæðismál allt frá setningu laga nr. 75/1989, sem kom
húsbréfakerfinu á fót. 

Á þessum grundvelli hefur Íbúðalánasjóður látið fara fram aukaútdrátt. Yfirlit
um hin útdregnu bréf verður að finna í Lögbirtingarblaðinu þann 15. desember
n.k.. Við útdráttinn var farin sú leið að draga út húsbréf, flokk á móti
flokki, á þann veg að dregin hafa verið út húsbréf sem svara beint til
uppgreiðslna fasteignaveðbréfa sem skiptanleg voru fyrir húsbréf úr flokknum.
Því er fullkomið samræmi milli uppgreiðslna og útdráttar, eins og lögin gera
ráð fyrir. 
Gert er ráð fyrir að aukaútdráttum verði áfram beitt til að jafna sjóðsstreymi
Íbúðalánasjóðs vegna uppgreiðslna, í samræmi við tilvitnaðar lagaheimildir. 

Húsbréf úr eftirtöldum rafvæddum flokkum voru dregin út í þessum aukadrætti og
koma til greiðslu þann 15. desember 2008 

Heiti					Nafnverð

2. flokkur 1998   (IBH37-1215)	286.618.393
1. flokkur  2001  (IBH26-0315)	 38.617.187
2. flokkur  2001  (IBH41-0315)       659.931.141