|
|||
2009-11-30 18:20:39 CET 2009-11-30 18:21:38 CET REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - Ársreikningur- Uppgjör þriðja ársfjórðungs og fyrstu níu mánaða 2009Afkoma Icelandair Group á þriðja ársfjórðungi 2009 • Heildarvelta Icelandair Group var 53,6 milljarðar króna og jókst um 29% frá sama tíma í fyrra • EBITDA var 8,4 milljarðar króna en var 6,2 milljarðar króna á sama tíma í fyrra • EBIT var 6,9 milljarðar króna en var 5,1 milljarður króna á sama tíma í fyrra. Afskriftir voru 1,6 milljarðar króna sem er hækkun um 0,5 milljarða frá fyrra ári. • Fjármagnskostnaður var 2,1 milljarður króna samanborið við 49 milljónir króna árið áður • Hagnaður eftir skatta var 4,0 milljarðar króna en hagnaður var 4,4 milljarðar króna á sama tíma í fyrra • Afkoma erlendra dótturfélaga fyrir skatta var 1,3 milljörðum króna verri en á sama tíma í fyrra Afkoma Icelandair Group á fyrstu níu mánuðum 2009 • EBITDA var 7,5 milljarðar króna en var 7,2 milljarðar króna á sama tíma í fyrra • EBIT var 3,3 milljarðar króna en var 4,3 milljarðar króna á sama tíma í fyrra. Afskriftir voru 4,1 milljarður króna sem er hækkun um 1,3 milljarða frá fyrra ári. • Fjármagnskostnaður var 4,2 milljarður króna samanborið við 0,8 milljarða króna árið áður • Tap eftir skatta var 1,0 milljarðar króna en hagnaður var 3,1 milljarðar króna á sama tíma í fyrra • Handbært fé í lok ársfjórðungsins var 6,1 milljarður króna, en var 7,4 milljarðar á sama tíma í fyrra • Eiginfjárhlutfall var 23,5 % í lok september 2009, en var 20,3% í lok ársins 2008 • Eignir voru 105,6 milljarðar króna í lok september 2009 samanborið við 98,8 milljarða króna í árslok 2008 Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group: „Á þriðja ársfjórðungi gekk grunnrekstur Icelandair Group vel og má sjá bata í öllum hlutföllum rekstrarreiknings milli ára þar til kemur að afskriftum og fjármagnsliðum. Við erum ánægð með árangurinn í fjórðungnum og við þökkum starfsfólki fyrir þeirra framlag við erfiðar aðstæður. Þetta ár er líklega það erfiðasta sem okkar rekstrargrein hefur gengið í gegnum, og þess sjást glögg merki í rekstri erlendra dótturfélaga þar sem verkefni hafa dregist saman og verð lækkað, með tilheyrandi áhrifum á afkomu. Stóra verkefni okkar allt þetta ár hefur falist í endurskipulagningu efnahagsreiknings samstæðunnar og þá sérstaklega fjármagnshlið hans. Ljóst hefur verið um all langt skeið að minnka þarf skuldsetningu, bæta lausafjárstöðu og styrkja eiginfjárhlutfall félagsins. Ferlið hefur tekið lengri tíma en upphaflega var gert ráð fyrir, en nú hafa fyrstu skrefin verið stigin í endurskipulagningunni. Ákveðið hefur verið að einfalda viðskiptalíkan Icelandair Group og leggja áherslu á þau tækifæri sem felast í leiðarkerfi Icelandair, ferðaþjónustu á Íslandi og tengdum rekstri og er markmiðið sett á innri vöxt á þessu sviði. Þessi breyting er bein afleiðing af breytingum á fjármagnsmörkuðum, sem segja má að hafi skapað undirstöðu þess viðskiptalíkans sem stuðst hefur verið við undanfarin misseri. Með tíð og tíma og við réttar markaðsaðstæður munum við selja aftur þær fyrirtækjafjárfestingar sem ráðist var í á árunum 2005-2007. Fyrsta skrefið í þeirri átt var stigið í síðustu viku þegar við seldum 20% hlut í Travel Service og fórum þar úr meirihlutaeign. Vinna við endurskipulagninguna mun halda áfram á næstu vikum. Eignir sem félagið ætlar sér að selja á næstu misserum verða endurmetnar og getur það haft áhrif á eigið fé. Rekstrarmarkmið okkar fyrir árið í heild, 6,5 milljarðar króna í EBITDA, eru óbreytt. Að okkar mati er þar um að ræða mjög ásættanlegan rekstararárangur þegar horft er á rekstrarumhverfið. Hins vegar er fjármagnskostnaður félagsins allt of hár og unnið er hörðum höndum að því að lækka hann með því að breyta fjármagnsskipan.“ |
|||
|