2024-04-29 17:10:00 CEST

2024-04-29 17:10:00 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Kvika banki hf. - Árshlutareikningur (Q1 og Q3)

Kvika banki hf.: Birting þriggja mánaða uppgjörs fimmtudaginn 2. maí


Áætlað er að stjórn Kviku banka hf. samþykki árshlutareikning samstæðunnar fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2024 á stjórnarfundi fimmtudaginn 2. maí og verður hann birtur í kjölfarið, eftir lokun markaða.

Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn sama dag, fimmtudaginn 2. maí kl. 16.15, í höfuðstöðvum bankans á 9. hæð í Katrínartúni 2, 105 Reykjavík.

Á fundinum munu Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, og Eiríkur Magnús Jensson, fjármálastjóri, fara yfir uppgjör félagsins og helstu þróun á liðnum mánuðum. Þá mun Richard Beenstock, framkvæmdastjóri Kviku í Bretlandi, fara stuttlega yfir þróun og horfur í rekstri félagsins í Bretlandi.

Fundinum verður streymt á íslensku en upptaka með enskum texta verður einnig gerð aðgengileg síðar á vefsvæði Kviku.

Hægt er að senda tölvupóst með spurningum fyrir fund eða á meðan honum stendur á fjarfestatengsl@kvika.is

Fjárfestakynning sem verður farið yfir á fundinum verður gerð aðgengileg fyrir fundinn.