|
|||
2012-05-09 18:02:00 CEST 2012-05-09 18:02:03 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtgáfa á RIKS 33 0321 í tengslum við gjaldeyrisútboðÍ dag 9. maí fór fram gjaldeyrisútboð hjá Seðlabanka Íslands þar sem bankinn bauðst til þess að kaupa evrur gegn afhendingu á ríkisbréfum í verðtryggða flokknum RIKS 33 0321. Aðgerðin sem er liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum mun draga úr árlegri endurfjármögnunarþörf ríkissjóðs. Samtals voru seld bréf í flokknum fyrir kr. 3.020.959.328 að nafnverði. Samþykkt gengi evru gangvart krónur var 238,8 í útboðinu. Þann 3. maí var tilkynnt um fast verð bréfanna sem er 102,090153 kr. pr. nafnverðseiningu með áföllnum vöxtum og verðbótum (e. dirty price) miðað við uppgjörsdag 11. maí 2012 (krafa 3,00%).1 ____________________ 1Hreint verð (e. clean price) 100,00 |
|||
|