2016-12-30 14:38:19 CET

2016-12-30 14:38:19 CET


REGLERAD INFORMATION

Isländska
Skeljungur hf. - Fyrirtækjafréttir

Skeljungur: Skeljungur hf. semur um endurfjármögnun


Skeljungur hefur samið við Bank Nordik og Eik banka, í samráði við Seðlabanka
Íslands, og náð samkomulagi við Arion banka um helstu skilmála í tengslum við
endurfjármögnun á öllum vaxtaberandi skuldum félagsins. Gert er ráð fyrir að
endurfjármögnunin muni, á ársgrundvelli frá því að samningar taka gildi, lækka
fjármagnskostnað félagsins um 160 til 170 milljónir króna frá því sem annars
hefði orðið, þó háð skuldsetningu félagsins yfir tímabilið. Jafnframt mun
gjörningurinn draga úr gjaldeyrisáhættu félagsins.

Þann  30. september sl. stóðu vaxtaberandi skuldir í um 6.954 milljónum króna og
var þá um 80% lánsfjármögnunar í íslenskum krónum. Eftir endurfjármögnunina munu
um  38% vaxtaberandi skulda vera í íslenskum  krónum, 54% í dönskum krónum og um
8% í  Bandaríkjadollurum. Eins og  fram kom í  skráningarlýsingu félagsins hefur
félagið  átt í viðræðum við fjármögnunaraðila  á undanförnum misserum með það að
markmiði að draga úr vaxtakostnaði félagsins og gjaldeyrisáhættu.

Lánin  eru tryggð  með veðum  í birgðum,  kröfum, rekstratækjum  og öllum helstu
fasteignum félagsins, ásamt hlutafé í dótturfélagi Skeljungs, Magn P/F.

Fyrirhuguð fjármögnun er háð fyrirvörum um endanlega skjalagerð. Búist er við að
 fjármögnunin  gangi í gegn á fyrsta ársfjórðungi 2017.]

Valgeir M. Baldursson, forstjóri Skeljungs:

"Við  erum afar  ánægð með  að hafa  náð samningum um endurfjármögnun félagsins.
Þetta  gerir okkur  ekki einungis  kleift að  lækka vaxtakostnað verulega heldur
einnig  draga úr  gjaldeyrissáhættu félagsins.  Starfsemi okkar  í Færeyjum, sem
rekin  er undir  merkjum Magns,  dótturfélags Skeljungs,  er grundvöllur þess að
hægt var ná fram slíkri lækkun vaxtakostnaðar þar sem félagið er með sjóðstreymi
í dönskum krónum og sterk tengsl við færeyska banka."

Nánari  upplýsingar  veitir  Benedikt  Ólafsson,  framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Skeljungs hf., s: 840-3071, tölvupóstur: fjarfestar@skeljungur.is.


[]