|
|||
![]() |
|||
2017-12-14 10:15:34 CET 2017-12-14 10:16:36 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarFjárlagafrumvarp 2018Fjárlagafrumvarp fyrir árið 2018 verður lagt fram á Alþingi í dag. Vegna óvenjulegra aðstæðna er frumvarpið fyrst birt rafrænt á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins, þar sem skammur tími líður milli framlagningar og umfjöllunar á þinginu. Í frumvarpinu endurspeglast fyrstu áherslur nýrrar ríkisstjórnar, sem miða að því að samfélagið allt njóti góðs af yfirstandandi hagvaxtarskeiði og treysta til framtíðar samfélagslegan stöðugleika, velsæld og lífsgæði. Brugðist er við ákalli um að fjármagna betur mikilvæga samfélagsþjónustu og innviði en um leið er tryggt að góð afkoma ríkisfjármálanna endurspegli ábyrgð og festu. Áfram verður dregið úr skuldum ríkissjóðs. |
|||
|