2012-07-25 18:51:49 CEST

2012-07-25 18:52:51 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Marel hf. - Ársreikningur

Afkoma annars ársfjórðungs 2012


Mikill vöxtur og lægri framlegð á öðrum ársfjórðungi


  -- Tekjur á 2. ársfjórðungi 2012 námu 
186,5 milljónum evra, sem samsvarar 15,2% aukningu samanborið við sama
     tímabil árið 2011 [161,9 milljónir evra].
  -- EBITDA var 18,6 milljónir evra, sem er 10,0% af tekjum [Q2 2011 leiðrétt:
     20,9  milljónir evra].
  -- Rekstrarhagnaður (EBIT) var 12,2 milljónir evra, sem er 6,5% af tekjum [Q2
     2011 leiðrétt: 15,0 milljónir evra].
  -- Hagnaður eftir skatta nam 7 milljónum evra [Q2 2011: 0,2 milljónir evra
[1]]. Hagnaður á hlut (e. basic EPS) var 0,96 evru sent
[Q2 2011: 0,03]
. 
  -- Sjóðstreymi er áfram traust og hreinar vaxtaberandi skuldir voru 262
     milljónir evra í lok fjórðungsins samanborið við 248,8 milljónir evra í lok
     2. ársfjórðungs 2011.
  -- Staða pantanabókar Marel er áfram góð í lok fjórðungsins og nemur 182,6
     milljónum evra samanborið við 169 milljónir evra í lok annars ársfjórðungs
     2011.



9% EBIT framlegð á fyrri hluta ársins

  -- Tekjur námu 371,3 milljónum evra á fyrri hluta árs 2012, sem er 17,7%
     aukning samanborið við sama tímabil árið 2011 [1H 2011: 315,4 milljónir
     evra].
  -- Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 33,3 milljónum evra á fyrri hluta árs, sem er
     9% af tekjum [1H 2011 leiðrétt: 32,1 milljón evra].
  -- Hagnaður eftir skatta nam 20,1 milljón evra á fyrri hluta árs [1H 2011: 9
     milljónir evra
[2]]. 



Velta Marel á öðrum ársfjórðungi var góð og nam 186,5 milljónum evra, sem er
15,2% aukning samanborið við sama tímabil árið 2011.  Rekstarhagnaður var 6,5%
af veltu á öðrum ársfjórðungi sem er undir markmiði félagsins um 10-12% á
árinu.  Minni hagnað má rekja til aukins kostnaðar við framkvæmd ýmissa
verkefna, aukinna umsvifa í kjölfar áframhaldandi vaxtar og óhagstæðri
samsetningu seldra vara. Sé litið á fyrstu sex mánuði ársins er
rekstrarhagnaður (EBIT) 9% af veltu og rekstrarmarkmið félagsins er óbreytt
10-12%. 



Á öðrum ársfjórðungi er skipting tekna eftir landssvæðum í góðu jafnvægi.  Stór
verkefni voru í Brasilíu, Tyrklandi, Bandaríkjunum, Suður-Afríku og Rússlandi.
Tekjuskipting á milli fisk-, kjúklinga- og frekari vinnslu er jafnframt góð. 



Theo Hoen, forstjóri:

“Við erum ánægð með að tekjurnar halda áfram að vaxa og að staða pantana er
góð. Við höfum  lagt áherslu á að afkoman geti sveiflast milli ársfjórðunga
eins og raunin varð á síðasta ársfjórðungi. Marel hefur vaxið um 18% frá fyrra
ári og EBIT framlegð er 9% það sem af er ári. 



Markaðsstaða Marel er sterk þar sem góð landfræðileg dreifing og nýsköpun eru
lykilþættir. Það er skýrt markmið okkar að skila 10-12% EBIT framlegð á árinu.“ 



Góð staða pantanabókar

Á öðrum ársfjórðungi var góður gangur í nýjum pöntunum (þjónusta meðtalin), en
virði þeirra nam 179,6 milljónum evra samanborið við 168,8 milljónir evra á
öðrum ársfjórðungi 2011. Vöxt má einkum rekja til nýrra pantana á stórum
vinnslukerfum sem innihalda fjölbreyttar vörur og má þar nefna nýtt
flökunarkerfi fyrir lax  sem nýtur mikillar velgengni hjá viðskiptavinum Marel
vegna verðmætaaukningar sem þeir geta náð fram. Einnig er góð eftirspurn eftir
nýjum vörum á borð við AeroScalder (affiðrun með lofti) í kjúklingaiðnaði. 



Afkoma annars ársfjórðungs 2012

Lykiltölur úr rekstri - helstu tölur í þúsundum evra

Rekstrarreikningur          2.      2.  Breyti  Jan-Jú  Jan-Jú  Breyti
                        ársfj.  ársfj.      ng       n       n      ng
Á samstæðugrunni -        2012    2011     í %    2012    2011     í %
 Samanburðartölur eru                                                 
 leiðréttar 1)                                                        
----------------------------------------------------------------------
----------------------------------------------------------------------
   Tekjur               186.46  161.85    15,2  371.33  315.39    17,7
                             9       4               3       1        
   Framlegð             62.277  57.883     7,6  130.26  116.80    11,5
                                                     9       0        
   Framlegð sem           33,4    35,8       -    35,1    37,0       -
    hlutfall af tekjum                                                
   Rekstrarhagnaður     12.210  14.959  (18,4)  33.330  32.080     3,9
    (EBIT)                                               
   EBIT sem hlutfall       6,5     9,2       -     9,0    10,2       -
    af tekjum                                                         
   EBITDA               18.570  20.942  (11,3)  45.971  44.265     3,9
   EBITDA sem hlutfall    10,0    12,9       -    12,4    14,0       -
    af tekjum                                                         
   Hagnaður á            6.988     229  2.951,  20.057   9.004   122,8
    samstæðugrunni                           7                        
   Hagnaður sem            3,7     0,1       -     5,4     2,9       -
    hlutfall af tekjum                                                
   Mótteknar pantanir   179.61  168.82     6,4  365.03  329.57    10,8
    2)                       9       2               9       9        
   Pantanabók                                   182.56  168.98     8,0
                                                     1       1        
-------------------------------------------------------------------------
-------------------------------------------------------------------------
   1) Samanburðar tölur frá 2011 hafa verið leiðréttar fyrir 11,1 milljón       
    einskiptiskostnaði tengdum lífeyriskuldbindingum.                           
   2) Þjónustutekjur                                                      
    meðtaldar.                                                            
Sjóðstreymi                                                               
-------------------------------------------------------------------------
-------------------------------------------------------------------------
   Handbært fé frá       9.787   7.377               23.297       21.492  
    rekstri fyrir                                                         
    fjármagnsliði og                                                      
    skatta                                                                
   Handbært fé frá       4.902   2.709               14.499       11.171  
    rekstri                                                               
   Fjárfestingar        (9.016  (5.602             (16.201)     (10.841)  
                             )       )                                    
   Fjármögnun           (8.719  (9.693              (9.591)     (32.557)  
                             )       )                                    
                       ----------------        --------------------------
                       ----------------        --------------------------
   Nettó aukning        (12.83  (12.58             (11.293)     (32.227)  
    (minnkun) á             3)      6)                                    
    handbæru fé                                                           
Efnahagur                                                                 
-------------------------------------------------------------------------
-------------------------------------------------------------------------
   Nettó vaxtaberandi                               261.988      248.795  
    skuldir                                                               
   Veltufé 3)                                       117.890       78.649  
   3) Viðskiptakröfur, birgðir, verk í                                    
    vinnslu og lánardrottnar.                                             
Kennitölur                                                                
-------------------------------------------------------------------------
-------------------------------------------------------------------------
   Veltufjárhlutfall                                    1,3          1,3  
   Lausafjárshlutfall                                   0,9          0,8  
   Fjöldi útistandandi                              730.709      735.569  
    hluta í þúsundum                                                      
   Markaðsvirði hlutafjár í milljónum evra            697,1        532,1  
    miðað við gengi í loktímabils                                         
   Arðsemi eiginfjár                                  10,5%         5,2%  
   Hagnaður per hlut í    0,96    0,03                 2,76         1,23  
    evru sentum                                                           
   Skuldsetningarhlutf                                 2,63         2,76  
   all 4)                                                                 
   4)  Nettó vaxtaberandi skuldir / leiðrétt                              
    EBITDA síðustu 12 mánaða.                                             



Markaðir

Kjarnastarfsemi Marel beinist að fjórum greinum matvælaiðnaðarins: Vinnslu á
kjúklingi, fiski, kjöti og frekari vinnslu. 

Kjúklingur: Pantanir voru aftur með ágætum á öðrum fjórðungi þessa árs, þar sem
stórar pantanir komu frá Evrópu, Rússlandi, Kóreu, Tyrklandi og Brasilíu. Það
var áfram góð nýting hjá framleiðslueiningum fyrirtækisins. Á meðal stærstu
pantana þessa fjórðungs voru tvö mikilvæg verkefni í nýjar verksmiðjur:
fullbúin verksmiðja í Rússlandi til úrvinnslu á andakjöti og ný háhraða
vinnslustöð fyrir holdakjúkling í Tyrklandi þar sem nýja Aeroscalder-tæknin var
hluti af verkefninu. Við fengum mikilvæga pöntun frá Brasilíu þar sem við
leystum af hólmi fjölda Nuova-véla, sem notaðar eru til að taka innan úr
alifuglum, og auk þess barst stór viðbótarpöntun frá Kóreu. 

Fiskur: Við fundum fyrir miklum áhuga á Marel-búnaði á sjávarútvegssýningunni í
Brussel í apríl. Fjölmargir gestir komu við á Marel básnum og nokkrir samningar
voru gerðir. Pantanir á öðrum ársfjórðungi stóðust almennt væntingar,
sérstaklega á stærri kerfum. Marel lauk við uppsetningu á mörgum umfangsmiklum
kerfum og vinnslutækjum bæði fyrir lax og bolfisk á ársfjórðungnum. Á meðal
þeirra voru uppsetningar á hinum nýju MS 2730 flökunarvélum fyrir lax og á nýju
stöðluðu flæðilínunni. Útlitið fyrir næstu ársfjórðunga er talið gott. 

Kjöt: Almennt hefur verið rólegt yfir öðrum ársfjórðungi. Viðskiptavinir okkar
keppa á fremur lágri framlegð og finna fyrir áhrifum offramboðs á svínakjöti í
Evrópu, ásamt því að búa við erfitt fjárhagslegt og efnahagslegt umhverfi. Þar
af leiðandi erum við að finna fyrir töfum á fjárfestingum frá viðskiptavinum
okkar. Hins vegar er mikið um tilboðsgerð í verkefni og þau umsvif tengjast
helst  Norður-Evrópu, Bandaríkjunum og Kyrrahafssvæðinu. Framleiðendur hafa
sérstakan áhuga á hinu einstaka StreamLine kerfi okkar, sem gefur þeim tækifæri
til að bæta birgðastjórnun í úrbeiningarsal, en tryggir á sama tíma rekjanleika
vörunnar og betri vinnuvistfræðilegar lausnir fyrir starfsfólk. Í Póllandi erum
við að nálgast lok stærsta Case Ready verkefnis fyrir nýja verksmiðju sem Marel
hefur tekið þátt í til þessa. Við erum áfram bjartsýn á ný verkefni í
framtíðinni. 

Frekari vinnsla: Á fyrri helmingi ársins 2012 hafa heildarpantanir verið
samkvæmt áætlun, sem helst má rekja til þess að fyrirtæki í frekari vinnslu
vilja auka framleiðslugetu sína með fullbúnum línum. Marel tók nýlega á móti
stórri pöntun á hinu nýja og afkastamikla Cook-Smoke-Link kerfi sem byggir á
CoExtrusion-tækni (hátæknibúnaði til pylsugerðar). Svo virðist sem það sé
vaxandi áhugi á vörum okkar, sem er sérstaklega áberandi í Mið-Evrópu og
Mið-Austurlöndum, þó verulega hafi hægt á ákvarðanatöku. Til að bregðast við
auknum umsvifum á undanförnum ársfjórðungum höfum við nú flutt iðnaðarsetur
fyrir frekari vinnslu í nýja byggingu í Boxmeer. Í Bandaríkjunum hefur sölu- og
þjónustunet  fyrir kjöt og frekari vinnslu verið samþætt, sem þýðir að nú eru
fleiri sölustjórar fyrir smærri svæði og því er markaðsnálgunin öflugri. Við
vinnum nú ötullega að kynningu á fjölmörgum nýjungum á seinni hluta ársins. 



Nýsköpun

Nýsköpun og þróun er jafnvægislist á milli skammtíma- og langtímamarkmiða.
Innan Marel er notast við ýmis konar markmið. Á meðal skammtímamarkmiða er
uppfærsla á vörum þar sem fengist er við margar „smærri“ endurbætur sem
upprunnar eru frá starfsmönnum í þjónustu og samskiptum við viðskiptavini, í
því skyni að halda núverandi vörum uppfærðum. Gott dæmi um þetta er nýleg
markaðssetning á nýju stjórn- og flutningskerfi fyrir AMF-bringuflökunarkerfið
fyrir fuglakjöt. Það er hannað til að bæta nýtni og stöðugleika í
flökunarferlinu. 

Hvað varðar markmið rannsókna og þróunar til meðallangs tíma, eru nýjar
vöruhugmyndir þróaðar á grundvelli fyrirliggjandi tækni. Til dæmis brúar
hugmyndin um ídýfingarkælingu bilið á milli algjörrar loftkælingar, sem er
raunin í flestum evrópskum vinnslustöðvum, og fullrar kælingar með ídýfingu í
vatn, sem er ríkjandi í flestum öðrum heimshlutum. Nota má vatnskælingu með
ídýfingu til að auðvelda umskipti yfir í loftkælingu á ákveðnum mörkuðum eða
til að bæta úr skorti á rými á öðrum. Á sama hátt er hið nýstárlega SK 14-430
Poultry Skinner hannað til að fjarlægja skinn af kjúklingabringum, heilum
leggjum og lærum með mestu nýtni sem fyrirfinnst á markaðnum og án
vatnsnotkunar. 

Verkefni sem unnin eru með langtímamarkmið í huga taka yfirleitt mörg ár. Þau
leiða af sér nýjar tæknihugmyndir sem svara óuppfylltum þörfum eða gera
fyrirliggjandi tækni úrelta. Smartweigher og Innova-tækjavöktunin tilheyra
þessum flokki. Smartweigher sameinar alla þekkingu Marel á hreyfanlegri vigtun
í frábæra og einfalda lausn fyrir háhraðavigtun á afurðum sem hanga á keðju.
Hún hæfir mörgum mismunandi línum í vinnslustöðvum fyrir alifuglakjöt.
Innova-tækjavöktunin stuðlar að hámörkun nýtingartíma vinnslu og gerir
stjórnendum kleift að taka nákvæmar ákvarðanir er lúta að rekstri. 



Rekstrarhagkvæmni

Kostnaðaraðhald

Þrátt fyrir bakslag vegna kostnaðarauka við ýmis verkefni leggur Marel áfram
ríka áherslu á kostnaðaraðhald og hagræðingu. Mörg verkefni eru í gangi til að
straumlínulaga reksturinn og lækka kostnaðargrunn félagsins varanlega þrátt
fyrir aukin umsvif eins og vaxtarstefna Marel gerir ráð fyrir. 



Sjóðstreymi

Handbært fé, fyrir fjármagnsliði og skatta, var jákvætt um 9,8 milljónir evra
samanborið við 7,4 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi 2011. Hækkun veltufjár
stafar af auknum umsvifum í rekstri, en þó má sjá mælanlegan árangur af
umbótavinnu í þessum efnum. 



Fjármögnun

Efnahagsreikningurinn er traustur og nettó vaxtaberandi skuldir félagsins námu
262 milljónum evra í lok annars ársfjórðungs samanborið við 254,2 milljónir ílok fyrsta ársfjórðungs 2012. Rekstur félagsins er vel fjármagnaður þrátt fyrir
fjárfestingu í framleiðsluhúsnæði og búnaði til að takast á við frekari vöxt.
Sjóðspottur (e. cash pooling) er eitt af umbótaverkefnum Marel sem þegar hefur
skilað sér í lægri vaxtakostnaði. 



Horfur

Vel gengur að framfylgja stefnu Marel um framtíðarvöxt og félagið er bjartsýnt
á að ná markmiði um 10-12%  rekstrarhagnað af veltu þrátt fyrir minni hagnað á
öðrum ársfjórðungi. Þrátt fyrir ríkjandi óvissu í hagkerfum heimsins, benda
greiningar til þess að áfram verði nokkur vöxtur á matvælamarkaði. Marel metur
aðstæður á kjúklinga- og fiskmörkuðum góðar en horfur eru lakari til skemmri
tíma í kjötiðnaði. Engu að síður má gera ráð fyrir að afkoman verði breytileg
milli ársfjórðunga vegna efnahagsþróunar á heimsvísu, sveiflna í pöntunum og
tímasetningar stærri verkefna. 



Kynningarfundur 26. júlí 2012



Marel boðar til kynningarfundar um afkomu félagsins fimmtudaginn 26. júlí kl.
8:30 í húsnæði félagsins að Austurhrauni 9, Garðabæ. Fundinum verður einnig
netvarpað: www.marel.com/webcast. 



Birtingardagar fyrir reikningsárið 2012

  -- 3. ársfjórðungur 2012                                                    
     24. október 2012
  -- 4. ársfjórðungur 2012                                                    
     30. janúar 2013



Frekari upplýsingar veita:

Helga Björk Eiríksdóttir, fjárfesta- og almannatengill. Símar: 563 8543 og 853
8543. 

Erik Kaman, fjármálastjóri. Sími: 563 8072 .

Sigsteinn Grétarsson, aðstoðarforstjóri. Sími: 563 8072.








Um Marel                                                                        
Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á     
 heimsvísu í þróun og framleiðslu á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á    
 fiski, kjöti og kjúklingi. Fyrirtækið starfrækir skrifstofur og dótturfyrirtæki
 í meira en 30 löndum, auk 100 umboðsmanna og dreifingaraðila.                  
Athygli fjárfesta er vakin á eftirfarandi:                                      
Sumar staðhæfingar í þessari fréttatilkynningu kunna að vera byggðar á mati og  
 áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna   
 við birtingu hennar. Í eðli sínu fela slíkar staðhæfingar því í sér óvissu. Við
 vekjum þess vegna athygli fjárfesta á því að margir þættir geta haft þau áhrif 
 að rekstrarumhverfi og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir
 í þessari tilkynningu. Tilkynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað
 þetta varðar.                                                                  










[1]Þ.m.t. er einskiptiskostnaður tengdur samningi um nýtt fyrirkomulag
lífeyrissjóðsmála sem nam 11,1 milljón evra. 





[2]Sjá neðanmálsgrein 1.