2014-04-14 17:16:56 CEST

2014-04-14 17:17:57 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
CCP hf. - Fyrirtækjafréttir

CCP hættir þróun á tölvuleiknum World of Darkness


Tölvuleikjaframleiðandinn CCP tilkynnir að þróun á tölvuleiknum World of
Darkness, sem hefur verið í vinnslu á skrifstofu fyrirtækisins í Atlanta í
Bandaríkjunum, hefur verið hætt. 

Í kjölfar þessarar ákvörðunar eru lögð niður 56 stöðugildi hjá CCP í Atlanta.
Hluti starfsmanna sem missa stöður sínar hefur verið boðin önnur störf hjá
fyrirtækinu. CCP veitir öllum fráfarandi starfsmönnum aðstoð við atvinnuleit. 

Þeir starfsmenn CCP sem halda áfram störfum fyrir fyrirtækið í Atlanta munu
vinna að þróun leikja í EVE veröldinni, sem þýðir að í fyrsta sinn frá árinu
2006 munu allir starfsmenn fyrirtækisins starfa að einni og sömu leikjaveröld. 

Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP:

“Ákvörðunin að hætta þróun World of Darkness er ein sú erfiðasta sem ég hef
tekið. Ég hef haft trú á þeirri sýn að búa til fjölspilunar tölvuleikjaupplifun
í veröld World of Darkness, og fylgst með þróunarteymi leiksins vinna af
ástríðu að því markmiði síðustu ár. 

Ég vil þakka öllum þeim sem hafa unnið svo ötullega að því að gera World of
Darkness tölvuleikinn að veruleika, sérstaklega þeim starfsmönnum sem þessi
ákvörðun hefur áhrif á. Framlag þeirra til CCP hefur verið umtalsvert og því
verður ekki gleymt, ég óska þeim öllum velfarnaðar. 

Við núverandi og fyrrverandi starfsmenn CCP og alla þá sem sýnt hafa World of
Darkness áhuga, vil ég segja að mér þykir mjög leitt að við náðum ekki
markmiðum okkar að færa ykkur þá upplifun sem við einsettum okkur að skapa.
Okkur dreymdi um leik sem færði spilarann í ævintýraheim World of Darkness, en
verðum að horfast í augu við að það verður ekki að veruleika. Ég vona að við
getum einhvern tímann bætt ykkur þetta. 

Þrátt fyrir að þetta hafi verið erfið ákvörðun sem hefur áhrif á vini okkar og
fjölskyldur, þá mun hún sameina fyrirtækið í því markmiði að þróa leiki fyrir
eina og sömu leikjaveröldina sem setur okkur í sterkari stöðu til að ná
árangri. Við erum nú staðráðnari en nokkru sinni fyrr að gera EVE að stærstu
leikjaveröld í heimi.” 




Frekari upplýsingar:

Eldar Ástþórsson, upplýsingafulltrúi CCP
Netfang: eldar@ccpgames.com
Sími 869 8179