2017-04-10 18:33:47 CEST

2017-04-10 18:33:47 CEST


REGLERAD INFORMATION

Isländska
HB Grandi hf. - Boðun hluthafafundar

Dagskrá og tillögur fyrir aðalfund HB Granda hf. 5. maí 2017


Aðalfundur HB Granda hf. verður haldinn föstudaginn 5. maí 2017 í matsal félagsins að Norðurgarði 1, 101 Reykjavík og hefst hann klukkan 17:00. Fundurinn fer fram á íslensku.

Dagskrá

1.      Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina síðastliðið ár.

2.      Endurskoðaður ársreikningur lagður fram til staðfestingar.

3.      Tillaga stjórnar um greiðslu arðs.

4.      Tillaga stjórnar að starfskjarastefnu.

5.      Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna.

6.      Kosning stjórnar félagsins.

7.      Kosning endurskoðenda.

8.      Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum.

9.      Önnur mál, löglega upp borin.

 

Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað frá kl. 16:30

 

Tillögur

Tillaga um greiðslu arðs

Stjórn félagsins leggur til að á árinu 2017 verði vegna rekstrarársins 2016 greiddar 1 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 1.814 millj. kr. (um 15,3 millj. evra á lokagengi ársins 2016), eða 3,8% af markaðsvirði hlutafjár í lok árs 2016.  Arðurinn verði greiddur 31. maí 2017.  Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 5. maí 2017 og arðleysisdagur því  8. maí 2017.

Arðsréttindadagur er 9. maí 2017.  Arður greiðist þeim sem skráðir eru í hlutaskrá félagsins í lok arðsréttindadags. 

Tillaga félagsstjórnar að starfskjarastefnu

Stjórn leggur til að starfskjarastefna frá fyrra ári verði samþykkt óbreytt.

Tillaga um þóknun til stjórnarmanna

Þóknun næsta árs til stjórnarmanna verði 264.000 kr. á mánuði og formaður fái tvöfaldan hlut.

Kosning endurskoðanda

Stjórn félagsins leggur til að Deloitte ehf. verði kjörinn endurskoðandi félagsins. 

Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum

Aðalfundur veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi má eigi vera hærra en í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem hærra er.  Aðrar eldri heimildir til kaupa á eigin hlutabréfum falla úr gildi við samþykkt heimildar þessarar.

Aðrar upplýsingar

Hluthöfum er bent á að skv. 63. gr. hlutafélagalaga skal tilkynna skriflega, minnst fimm dögum fyrir hluthafafund, um framboð til stjórnar. Framboðum skal skila á skrifstofu HB Granda, Norðurgarði 1 eða á netfangið adalfundur@hbgrandi.is. Tilkynnt verður um framkomin framboð tveimur dögum fyrir aðalfundinn.

Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar á netfangið adalfundur@hbgrandi.is með það löngum fyrirvara að unnt sé að taka málið á dagskrá fundarins, 10 dögum fyrir fundinn. Þannig skulu óskir hluthafa liggja fyrir eigi síðar en kl. 17:00 þriðjudaginn 25. apríl 2017.

Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé.  Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar.

Heildarhlutafé félagsins nemur kr. 1.822.228.000 og fylgir eitt atkvæði hverjum hlut. Eigin bréf félagins eru kr. 8.569.277 og virkt hlutafé félagins því 1.813.658.723.

Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað frá klukkan 16:30.

Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn, geta:

a) veitt öðrum skriflegt umboð

b) greitt atkvæði skriflega

Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að.  Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins.

Dagskrá og öll skjöl sem lögð verða fyrir aðalfundinn, þ.m.t. ársreikningur félagsins og tillögur eru hluthöfum tiltæk á íslensku, á heimasíðu félagsins og á skrifstofu félagsins á venjulegum skrifstofutíma.  Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar viku fyrir fundinn.

Allar nánari upplýsingar um aðalfundinn má finna á vefsíðu félagsins www.hbgrandi.is

 

Stjórn HB Granda hf.