|
|||
![]() |
|||
2017-04-10 18:53:19 CEST 2017-04-10 18:53:19 CEST REGULATED INFORMATION FAST-1 slhf. - Notice to general meetingFAST-1 slhf. - AðalfundurAðalfundur FAST-1 slhf. Aðalfundur FAST-1 slhf. verður haldinn þann 25. apríl 2017 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52, 101 Reykjavík. Salur 4. Boðið verður upp á léttar veitingar að fundi loknum. Fundurinn hefst kl. 10:30. Dagskrá aðalfundarins er eftirfarandi: 1. Skýrsla stjórnar 2. Ársreikningur félagsins lagður fram til samþykktar 3. Ákvörðun um arðgreiðslu 4. Ákvörðun um greiðslu stjórnarlauna 5. Tillaga að breytingum á samþykktum félagsins 6. Kosning í stjórn félagsins 7. Kosning endurskoðunarfélags fyrir félagið 8. Tillaga stjórnar um reglur um mat á fjárfestingarkostum félagsins 9. Tillaga stjórnar um reglur um sölu eignasafns, ráðstöfun söluandvirðis og starfstíma félagsins 10. Tillaga um starfskjarastefnu, ef við á, sbr. 79. gr. a laga um hlutafélög 11. Önnur mál Tilnefningar og framboð til stjórnar félagsins munu liggja fyrir á skrifstofu félagsins með lögbundnum fyrirvara. Ársreikningur félagsins er birtur á vefsíðu félagsins: www.fast1.co.is. Hluthafar geta nálgast gögn vegna aðalfundar á skrifstofu félagsins að Katrínartúni 2, 105 Reykjavík, á skrifstofutíma alla virka daga. Fundurinn mun fara fram á íslensku og eru fundargögnin á íslensku. [] |
|||
|