2017-04-10 19:50:38 CEST

2017-04-10 19:50:38 CEST


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Íslenska
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Innherjaupplýsingar

Sjóvá: Upplýsingar í aðdraganda árshlutauppgjörs


Í tilkynningu með ársuppgjöri fyrir árið 2016 kynnti Sjóvá horfur fyrir árið 2017 um afkomu fyrir skatta umfram 2,5 ma.kr. og samsett hlutfall á bilinu 97-99%.

Í drögum að uppgjöri fyrir fyrsta ársfjórðung árið 2017 er afkoma félagsins fyrir skatta um 1.150 ma.kr. og samsett hlutfall um 103,5%. Afkoma fjórðungsins helgast af betri fjárfestingatekjum en ráð var fyrir gert, m.a. vegna góðrar ávöxtunar af hlutabréfaeign félagsins.  

Félagið sér ekki ástæðu til þess að uppfæra birtar horfur fyrir afkomu ársins eða samsett hlutfall að svo stöddu.

Félagið mun birta ársfjórðungsuppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung 2017 eftir lokun markaða 27. apríl nk. og býður félagið markaðsaðilum til kynningarfundar kl. 16.15 þann sama dag í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð.

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Vala Halldórsdóttir, s: 844-2136, netfang: fjarfestar@sjova.is