2017-04-10 20:05:08 CEST

2017-04-10 20:05:08 CEST


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Innherjaupplýsingar

Sjóvá: Leiðrétting við frétt sem birt var 2017-04-10 19:49:37 CEST


Í ofangreindri frétt var ranglega tilgreint í annarri málsgrein, að í drögum að uppgjöri fyrir fyrsta ársfjórðung 2017 væri afkoma félagsins fyrir skatta um 1.150 ma.kr. Þarna átti að sjálfsögðu að standa 1.150 m.kr. Búið er að leiðrétta þetta í tilkynningunni hér að neðan:

-----

Í tilkynningu með ársuppgjöri fyrir árið 2016 kynnti Sjóvá horfur fyrir árið 2017 um afkomu fyrir skatta umfram 2,5 ma.kr. og samsett hlutfall á bilinu 97-99%.

Í drögum að uppgjöri fyrir fyrsta ársfjórðung árið 2017 er afkoma félagsins fyrir skatta um 1.150 m.kr. og samsett hlutfall um 103,5%. Afkoma fjórðungsins helgast af betri fjárfestingatekjum en ráð var fyrir gert, m.a. vegna góðrar ávöxtunar af hlutabréfaeign félagsins.  

Félagið sér ekki ástæðu til þess að uppfæra birtar horfur fyrir afkomu ársins eða samsett hlutfall að svo stöddu.

Félagið mun birta ársfjórðungsuppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung 2017 eftir lokun markaða 27. apríl nk. og býður félagið markaðsaðilum til kynningarfundar kl. 16.15 þann sama dag í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð.

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Vala Halldórsdóttir, s: 844-2136, netfang: fjarfestar@sjova.is