2015-03-12 11:49:38 CET

2015-03-12 11:50:17 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Fjarskipti hf. - Fyrirtækjafréttir

Fjarskipti hf. : Síminn hf. krefur Fjarskipti hf. um skaðabætur


Fjarskipti hf. hefur borist krafa frá Símanum um skaðabætur vegna meintrar
ólögmætrar notkunar á vörumerkinu Tímaflakk. Krafan er að fjárhæð 400 milljónir
króna. Fjarskipti hf. telja ekki grundvöll fyrir kröfunni. Ágreiningur er um
skráningu Símans á vörumerkinu sem ekki hefur verið til lykta leiddur. Fyrir
liggur nýlegur úrskurður Einkaleyfastofu, frá 12. febrúar 2015, sem kveður á um
að skráning Símans á orðmerkinu Tímaflakk skuli halda gildi sínu. Fjarskipti hf.
hafa ákveðið að bera úrskurðinn undir áfrýjunarnefnd í vörumerkjamálum. Auk þess
telur Fjarskipti hf. fjárhæð bótakröfunnar í engu samræmi við málsatvik og
dómafordæmi.


[HUG#1902744]