|
|||
![]() |
|||
2017-08-28 20:17:27 CEST 2017-08-28 20:17:27 CEST REGULATED INFORMATION Heimavellir hf. - Árshlutareikningur - 6 mán.Heimavellir hf.: Árshlutareikningur Heimavalla hf., samstæðureikningur 2017Heimavellir hf hefur birt samandreginn árshlutareikning samstæðunnar fyrir tímabilið 1. janúar 2107 til 30. júní 2017 sem var samþykktur af stjórn félagsins í dag 28. ágúst 2017. Ársreikninginn er að finna í viðhengi tilkynningar þessar og verður jafnframt aðgengilegur á heimasíðu félagsins heimavellir.is. Leigutekjur ríflega þrefaldast á milli ára og eru 1.423 mkr í samanburði við 493 mkr á sama tímabili í fyrra. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu eru 672 mkr í samanburði við 214 mkr á árinu 2016. Að teknu tilliti til matsbreytingar fjárfestingaeigna er rekstrarhagnaður tímabilisins 2.525 mkr í samanburði við 2.090 mkr á sama tímabili 2016. Heildarhagnaður tímabilsins eru 1.066 mkr í samanburði við 1.400 mkr á sama tíma í fyrra. Eignir félagsins í lok tímabilsins eru 51.373 mkr í samanburði við 43.280 mkr í lok síðasta árs en eignir félagsins eru fyrst og fremst leiguíbúðir. Eigið fé félagsins eru 15.687 mkr og er eiginfjárhlutfall þess í lok tímabilsins 30,5%. Guðbrandur Sigurðsson framkvæmdastjóri Heimavalla segir: "Það sem einkennir þetta árshlutauppgjör er sá mikli vöxtur sem hefur orðið á félaginu undanfarið en í lok síðasta árs sameinaðist félagið Ásabyggð sem var með ríflega 700 eignir á Suðurnesjum þannig að í lok júní 2017 var félagið með 1831 íbúð í rekstri. Það sem af er þessu ári hefur félagið fengið afhentar 200 nýjar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu sem eru allar komnar í leigu. Uppbygging félagsins hefur gengið vel en félagið sem er í eigu fagfjárfestasjóðsins Heimavalla leigufélags slhf stefnir á skráningu í kauphöll á síðasta ársfjórðungi þessa árs. Nánari upplýsingar veitir Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri í síma 896 0122. [] |
|||
|