|
|||
2015-10-07 19:09:43 CEST 2015-10-07 19:10:24 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : Íslandsbanki lýkur víxlaútboðiÍslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til 5 og 6 mánaða. Tilboðum var tekið fyrir 4,72 ma. kr. Seldir voru víxlar í flokki ISLA 16 0321 að nafnvirði 1,0 ma. kr. á 6,34% flötum vöxtum (verð 97,2928) og í flokki ISLA 16 0415 að nafnvirði 3,72 ma. kr. á 6,50% flötum vöxtum (verð 96,8015). Flokkur ISLA 16 0321 getur að hámarki orðið 1,5 ma. kr. að nafnvirði en flokkur ISLA 16 0415 getur orðið 5 ma. kr. að stærð. Fyrir útboðið voru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 3,4 ma. kr. Heildareftirspurn í útboðinu var 6,98 ma. kr. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 15. október næstkomandi, með auðkennunum ISLA 16 0321 og ISLA 16 0415. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4752/ 844 4752. * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [HUG#1957517] |
|||
|